Fara í efni

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

291. fundur 20. mars 2019 kl. 17:00 - 18:15 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir 1. varaforseti
  • Steinar Ingi Þorsteinsson 2. varaforseti
  • Gunnar Jónsson bæjarfulltrúi
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Kristjana Sigurðardóttir bæjarfulltrúi
  • Björg Björnsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hannes Karl Hilmarsson bæjarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Ársreikningur 2018

201903001

Björn Ingimarsson bæjarstjóri lagði fram ársreikning Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2018 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Helstu niðurstöðutölur eru sem hér segir:

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2018 námu 4.491 milj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 4.044 millj. kr.
Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði og afskriftir námu alls 3.536 millj. kr. í samanteknum ársreikningi 2017 fyrir A og B hluta, þar af námu rekstrargjöld A hluta 3.384 millj. kr. Afskriftir ársins í A og B hluta námu 281 millj. og þar af 170 millj. í A hluta. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 448 millj. í samanteknum A og B hluta, þar af 359 millj. í A hluta.
Eftir fjármagnsliði og afskriftir var rekstrarafkoma ársins jákvæð um 209 millj. kr. í samanteknum A og B hluta. Þar af var afkoma A-hluta jákvæð um 131 millj. kr. Fyrir fjármagnsliði var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 673 millj. kr., þar af 490 millj. kr. í A hluta.
Veltufé frá rekstri var jákvætt um 755 millj. kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af er veltufé frá rekstri í A hluta jákvætt um 518 millj. kr.
Fjárfestingahreyfingar ársins námu nettó 270 millj. kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af 176 millj. í A hluta.
Lántökur námu 243 millj. kr á árinu 2017 vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum við Brú Lífeyrissjóð, en afborganir af lánum og leiguskuldbindingum námu 535 millj. kr. á árinu 2018.
Eignir samkvæmt efnahagsreikningi námu 9.144 millj. kr. í árslok 2018 fyrir A og B hluta, þar af nema heildareignir A hluta 5.727 millj. kr. í árslok 2018.

Heildarskuldir og skuldbindingar námu 8.145 millj. kr. í árslok 2018 fyrir A og B hluta. Þar af nema heildarskuldir og skuldbindingar A hluta 5.024 millj. kr.

Ársreikningurinn í heild sinni er að öðru leyti aðgengilegur á heimasíðu Fljótsdalshéraðs.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan samstæðureikning Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2018 við síðari umræðu, en fyrri umræða um hann fór fram 6. mars sl. og var hann birtur í Kauphöllinni þann sama dag.
Með ársreikningi liggur einnig fyrir endurskoðunarskýrsla KPMG og ábyrgðar- og skuldbindingayfirlit í árslok 2018.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að boða til íbúafundar í Egilsstaðaskóla mánudaginn 25. mars kl. 19:30, þar sem ársreikningurinn verður kynntur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 462

1903004F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 2.1 og Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 2.1.

Fundargerðin lögð fram.

3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 463

1903009F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.
  • 3.1 201901002 Fjármál 2019
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 3.2 201903001 Ársreikningur 2018
    Bókun fundar Afgreitt undir lið 1 í þessari fundargerð.
  • Bókun fundar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bókun fundar Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn samþykkir að beina því til aðalfundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella að HEF hefji rekstur gagnaveitu. HEF muni þannig annast framkvæmd ljósleiðaravæðingar í dreifbýli sveitarfélagsins samkvæmt því er fram kemur í tilboði Fjarskiptasjóðs til sveitarfélagsins og samþykkt var af hálfu sveitarfélagsins 7. mars sl. Sveitarfélagið mun leggja verkefninu til þá fjármuni er munu koma frá Fjarskiptasjóði, sem og þá sem tilgreindir eru undir framlagi íbúa og sveitarfélags, auk byggðastyrks. HEF mun sjá um fjármögnun þess hlutar er fellur undir framlag annarra sem og það sem út af stendur er önnur framangreind framlög hafa verið innt af hendi. Skal fjármögnun af hálfu HEF eiga sér stað ýmist með eigin fé eða lántökum, byggt á mati stjórnar HEF hverju sinni.
    Fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundi HEF fái umboð til að leggja fyrir aðalfund tillögu þessa efnis sem og að veita henni stuðning.

    Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkv. en 1 sat hjá (BB).

    Björg gerði grein fyrir atkvæði sínu.


    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að aðalmenn í bæjarstjórn fari með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum í því hlutfalli sem fjöldi þeirra á fundinum segir til um. Heimilt er varabæjarfulltrúa að mæta, ef aðalmaður forfallast og fara með atkvæði hans.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Bæjarstjórn gerir þá tillögu til aðalfundar HEF að skipan fulltrúa í stjórn fyrirtækisins verði óbreytt.

    Samþykkt með 8 atkvæðum, en 1 greiddi atkvæði á móti (HKH).
  • Bókun fundar Á fundi bæjarráðs kom fram beiðni um skipan nýs fulltrúa Fljótsdalshéraðs í samráðsvettvangi hagsmunaaðila vegna Kröflulínu 3.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að formaður umhverfis- og framkvæmdanefndar verði fulltrúi sveitarfélagsins í samráðsvettvangnum, líkt og verið hefur.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir þingsályktunartillögu þess efnis að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjarvíkurflugvallar og er afstaða bæjarstjórnar í þá veru að flugvöllur og miðstöð innanlands- og sjúkraflugs skuli vera áfram í Vatnsmýrinni í Reykjavík uns jafngóður eða betri kostur verði tilbúinn til notkunar.
    Þá tekur bæjarstjórn undir greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögunni. Reykjavíkurflugvöllur gegnir mikilvægu og fjölþættu hlutverki í samgöngum íbúa landsbyggðarinnar. Þá er tilgangur hluta ferðanna að sækja læknisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og tengist staðsetning flugvallarins þannig brýnum öryggishagsmunum almennings. Þá gegnir flugvöllurinn einnig lykilhlutverki í tengingu landsbyggðanna við opinbera grunnþjónustu og mikilvægar opinberar stofnanir, sem flestar eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu.

    Samþykkt með 6 atkv. en 3 voru á móti (SIÞ. KS. og BB.)
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

4.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 108

1903005F

Til máls tóku: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Kristjana Sigurðardóttir, sem ræddi lið 4.3.

Fundargerðin lögð fram.

5.Atvinnu- og menningarnefnd - 84

1903002F

Til máls tók: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Fyrir atvinnu- og menningarnefnd lá tölvupóstur frá Jónínu Brynjólfsdóttur, Austurbrú, þar sem fram koma upplýsingar um áform Ferðamálastofu varðandi fjárframlög til upplýsingamiðstöðva.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og telur brýnt að ríkið leggi fram fjármagn til þess að hægt sé að veita ferðamönnum upplýsingar um land allt í upplýsingamiðstöðvum, m.a. með öryggissjónarmið í huga. Bæjarstjórn vekur jafnframt athygli á því að sveitarfélagið rekur upplýsingamiðstöð, Egilsstaðastofu, og mun halda þeim rekstri áfram að óbreyttu.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Fyrir liggja gögn frá opnum fundi sem haldinn var 7. mars 2019 um matvælaframleiðslu á Héraði.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar felur bæjarstjórn starfsmanni að boða hagsmunaaðila sem fyrst til fundar um matvælaframleiðslu í kjölfar opna fundarins.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur tillaga, dagsett 22. febrúar 2019, frá Benedikt Warén, um verkefni sem miðar að skipulagningu á frístunda- og ræktunarhverfi á Valgerðarstöðum og við Urriðavatn. Málið var á dagskrá síðasta fundar nefndarinnar.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og leggur til að við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins verði gert ráð fyrir svæði fyrir afþreyingar- og ræktunarhverfi.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
  • Bókun fundar Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
  • Bókun fundar Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
  • Bókun fundar Lagt framt til kynningar.
  • Bókun fundar Vísað til afgreiðslu bæjarráðs undir lið 3.6.

6.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 273

1903006F

Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 6.5 og Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 6.5.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu fræðslunefndar samþykkir bæjarstjórn að leita megi til leikskóla sveitarfélagsins vegna umbeðinnar rannsóknar, lendi þeir í úrtaki, sbr. erindi þar að lútandi.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
  • Bókun fundar Eftirspurn eftir Frístund hefur verið vaxandi undanfarin ár, en nú býðst nemendum í 1.-3. bekk dvöl í Frístund fyrir skóla á morgnana og milli kl. 14 og 16 síðdegis. Á næsta skólaári kemur inn fjölmennur árgangur í 1. bekk og því er ljóst að vænta má enn frekari aukningar í eftirspurn.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu fræðslunefndar samþykkir bæjarstjórn að stofnaður verði starfshópur með fulltrúum frá íþrótta- og tómstundasviði og félagsmálasviði, auk fulltrúa fræðslusviðs.
    Jafnframt verði fulltrúi íþróttafélaga í starfshópnum. Hópurinn skoði markmið og leiðir í frístundastarfi barna og ungmenna í sveitarfélaginu og tækifæri hvað varðar húsnæðismál fyrir slíka starfsemi. Óskað er eftir að áætlun vegna starfsemi Frístundar á næsta skólaári liggi fyrir í síðasta lagi í maímánuði næstkomandi.
    Bæjarstjórn felur deildarstjórum fjölskyldusviðs að skipa fulltrúa í hópinn.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Til kynningar.

7.Leyfi kjörinna fulltrúa 2018 - 2022

201806092

Alda Ósk Harðardóttir, varafulltrúi B-lista í atvinnu- og menningarnefnd og fræðslunefnd, hefur óskað eftir tímabundnu leyfi frá nefndarstörfum sem gildi til 31. mars 2020. Beiðnin er sett fram með vísan til 1. mgr. 49. gr. laga nr. 138/2011.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að veita Öldu Ósk Harðardóttur leyfi frá nefndarstörfum til og með 31. mars 2020. Í hennar stað verði Ásdís Helga Bjarnadóttir annar varafulltrúi B-lista í atvinnu- og menningarnefnd og Einar Tómas Björnsson varafulltrúi B-lista í fræðslunefnd.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?