1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 440
1809011F
1.1
201801001
Fjármál 2018
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Á fundi bæjarráðs var lagt fram erindi frá Sverri Gestssyni þar sem hann baðst lausnar sem fulltrúi í stjórn endurmenntunarsjóðs. Einnig kom fram að Sigrún Blöndal sat í stjórn sjóðsins sem kjörinn fulltrúi sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að Steinar Þorsteinsson og Sigríður Herdís Pálsdóttir taki sæti í stjórn endurmenntunarsjóðs í stað Sverris og Sigrúnar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 441
1809017F
2.1
201801001
Fjármál 2018
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Á fundi bæjarráðs var farið yfir drög að áætlun um kostnað við framkvæmdir og rekstur viðbyggingar við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að fallið verði frá fyrirvara í samningi sbr. 8. gr. samnings um uppbyggingu við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum. Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarstjóra að hefja viðræður við fulltrúa byggingarnefndar Hattar um nánari útfærslu og aðlögun verkáætlunar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
2.7
201702095
Rafbílavæðing
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Á fund bæjarráðs mættu fulltrúar Fljótsdalshéraðs í norræna samstarfsverkefninu um betri bæi, þau Bylgja Borgþórsdóttir, Freyr Ævarsson og Kjartan Róbertsson. Farið var yfir þau erindi sem borist hafa til bæjarins varðandi nýtingu húss og lóðar að Miðvangi 31 og fund sem bæjarráð átti með fulltrúum frá þessum aðilum. Einnig upplýstu fulltrúar í samstarfsverkefninu um eitt og annað sem þau hafa verið að skoða hjá hinum norrænu samstarfsaðilunum í verkefninu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að vinna áfram að þróunarverkefninu, með það að markmiði að koma því af stað á næsta ári. Bæjarráð óskar eftir því við hópinn að þau útfæri nánar tillögu að fyrirkomulagi og rekstri tilraunaverkefnisins. Jafnframt er samþykkt að vísa fjármögnun þess til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir að Björn Ingimarsson verði fulltrúi Fljótsdalshéraðs á aðalfundinum og fari með umboð og atkvæði þar. Varamaður hans verði Stefán Bogi Sveinsson.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að Björn Ingimarsson fari með umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á fundinum. Varamaður hans verði Anna Alexandersdóttir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
3.Atvinnu- og menningarnefnd - 74
1809012F
-
Bókun fundar
Lagt farm til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
-
Bókun fundar
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
3.6
201809090
Ormsteiti 2018
Bókun fundar
Fyrir fundi atvinnu- og menningarnefndar lá greinargerð Menningarsamtaka Héraðsbúa um framkvæmd Ormsteitis, sem haldið var í ágúst 2018.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og þakkar Menningarsamtökum Héraðsbúa fyrir góð störf við framkvæmd Ormsteitis 2018.
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að auglýst verði eftir aðila eða aðilum til að sjá um framkvæmd og útfærslu bæjarhátíðarinnar Ormsteiti 2019 og/eða til næstu ára. Starfsmanni falið að útbúa drög að auglýsingu og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
4.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 98
1809009F
-
Bókun fundar
Á fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar var tekið fyrir erindi frá landeiganda þar sem óskað er eftir breytingum á nöfnum landeigna í fasteignaskrá.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn beiðni um breytt nöfn og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið í samræmi við fyrirliggjandi beiðni.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla nefndarinnar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur borist yfirferð Skipulagsstofnunar á breytingu á aðalskipulagi vegna Kröflulínu 3.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr skipulagslaga nr. 122/2010.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafði til umfjöllunar svar Skipulagsstofnunar við fyrirspurn nefndarinnar um flokkun fráveituframkvæmda vegna umhverfismats. Skipulagsstofnun metur það svo að fyrirhugaðar framkvæmdir falli undir tl. 11.05 í 1. viðauka laga um umhverfismat 106/2000 og séu því tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu skv. 6. gr. laganna.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og beinir því til HEF að tilkynna framkvæmdina til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Byggingarleyfi fyrir breytingu á Bláskógum 11 var grenndarkynnt þann 17. ágúst sl.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið þar sem athugasemdir bárust ekki við grenndarkynningu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
5.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 266
1809013F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu fræðslunefndar felur bæjarstjórn fræðslustjóra og leikskólastjórum að leggja fyrir könnun meðal foreldra varðandi skipulag sumarlokunar leikskólanna, svo hægt sé að skipuleggja og kynna lokunina næstu 3 árin.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Í tilefni af ályktun aðalfundar SSA um aukna stoðþjónustu við leik- og grunnskóla, tekur bæjarstjórn undir með fræðslunefnd og óskar eftir að fræðslustjóri leiði vinnu við kortlagningu á þörf fræðslustofnana sveitarfélagsins fyrir úrræði á því sviði, í samstarfi við skólastjórnendur.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
6.Íþrótta- og tómstundanefnd - 45
1808014F
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla nefndarinnar staðfest.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og samþykkir að áætlun um uppbyggingu göngu- og hjólastíga í sveitarfélaginu verði hluti af vinnu við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins sem boðuð hefur verið.
Tillagan borin upp og samþykkt með 5 atkv. en 4 sátu hjá. (KL. SIÞ. KS. og BB.)
Tillaga frá L-lista undir lið 6.4.
Bæjarstjórn felur íþrótta- og tómstundafulltrúa í samvinnu við atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúa að setja á fót starfshóp sem í sitji fulltrúar ólíkra hagsmunaaðila sem með einum eða öðrum hætti koma að göngu- og hjólreiðastígum í sveitarfélaginu. Starfshópnum verði falið að kortleggja þessa stíga og koma með tillögur að framtíðaruppbyggingu þeirra. Sömuleiðis verði kannaður möguleiki á því að sækja um undirbúnings- og hönnunarstyrk til verkefnisins í Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
Tillagan borin upp og var tillagan felld með 4 atkv. (SBS. ABU. GJ. og BHS.) gegn 3, 2 sátu hjá. (KL og HHS)
Tillaga L-lista þótti ganga lengra og var því borin upp fyrst.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
6.6
201809106
Íþróttasjóður
Bókun fundar
Íþróttasjóður Rannís auglýsti umsóknarfrest vegna styrkumsókna til 1. október 2018 kl.16:00. Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að aukinni þátttöku barna af erlendum uppruna. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og hvetur íþróttafélög á Fljótsdalshéraði til að nýta tækifærið og sækja um styrki í sjóðinn.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
7.Náttúruverndarnefnd - 10
1809003F
7.1
201807038
Auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis.
Bókun fundar
Á fundi náttúruverndarnefndar var kynnt erindi frá Umhverfisstofnun þar sem því er beint til sveitarfélaganna að vera vakandi fyrir ólöglegum skiltum í náttúru landsins. Greint er frá reglum náttúruverndarlaga nr. 60/2013 og reglugerðar nr. 941/2011 um auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis. Þá er leitast við að útskýra hvað telst vera látlaust auglýsingaskilti.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu náttúruverndarnefndar samþykkir bæjarstjórn að fela starfsmanni nefndarinnar að kynna gildandi reglur og viðmið sem kynnt eru í erindi Umhverfisstofnunar með auglýsingu, ásamt því að óska eftir ábendingum frá íbúum um auglýsingar sem ekki eru í samræmi við þær. Nefndin taki að því loknu saman ábendingar og sendi stofnuninni til viðeigandi meðferðar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
7.2
201808005
Átak í friðlýsingum, svæði í verndarflokki rammaáætlunar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
7.3
201808188
Stórurð - Náttúruperla
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með náttúruverndarnefnd og vill minna alla þá sem ferðast um náttúru landsins á mikilvægi þess að ganga vel um viðkvæm náttúrusvæði. Sérstaklega verður að gera þá kröfu til þeirra sem skipuleggja hópferðir á hestum eða farartækjum að tekið sé tillit til landgæða á einstökum stöðum og að umgengni um land sé með þeim hætti að ekki hljótist skaði af.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Málið að öðru leyti í vinnslu.
7.4
201706031
Uppbygging vindorku innan Fljótsdalshéraðs
Bókun fundar
Í vinnslu.
7.5
201808014
Þjóðgarðastofnun
Bókun fundar
Afgreiðsla nefndarinnar staðfest.
7.6
201809020
Kolefnisjöfnun Fljótsdalshéraðs
Bókun fundar
Í vinnslu.
7.7
201806148
Starfsáætlun náttúruverndarnefndar
Bókun fundar
Í vinnslu.
8.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 71
1808016F
8.1
201808197
Aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi - frá mennta- og menningarmálaráðherra.
Bókun fundar
Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra, sem skipaður var í kjölfar #églíka (#metoo) yfirlýsinga íþróttakvenna, hefur skilað ráðherra tillögum um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði og leggur til að unnið verði með skýrsluna og niðurstöður hennar hjá Fljótsdalshéraði og þær tillögur teknar til greina sem snúa beint að sveitarfélögum. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að jafnréttisnefnd verði falið að fylgjast með framgangi þeirrar vinnu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
8.2
201803138
Æskulýðsstefna Fljótsdalshéraðs
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
8.3
201809096
Viðburður í samstarfi við Útmeð'a, Geðhjálp og Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum
Bókun fundar
Í vinnslu.
8.4
201802005
Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
8.5
201809102
Ungmennaráð Unicef
Bókun fundar
Fram kom á fundi ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs að ungmennaráð Unicef vantar ungt fólk til að taka þátt í ýmsum verkefnum ráðsins í vetur.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði Fljótsdalshéraðs og hvetur ungt fólk í sveitarfélaginu til að kynna sér málin og gefa kost á sér til að starfa með ungmennaráði Unicef. Hægt er að leita upplýsinga á vefsíðu ráðsins, https://unicef.is/ungmennarad.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
8.6
201809101
Arctic circle 2018
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
8.7
201809098
Sameiginlegir fundir ungmennaráðs og bæjarstjórnar
Bókun fundar
Fyrir liggur að halda sameiginlega fundi ungmennaráðs og bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs starfsárið 2018 - 2019.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu ungmennaráðs samþykkir bæjarstjórn að fyrsti fundur verði haldinn 5. desember 2018.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
8.8
201808169
Ungmennaþing 2019
Bókun fundar
Í vinnslu.
8.9
201808168
Starfsáætlun ungmennaráðs 2018-2019
Bókun fundar
Í vinnslu.
8.10
201804100
Fjárhagsáætlun ungmennaráðs 2019
Bókun fundar
Í vinnslu.
9.Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar /Hótel Eyvindará
Fundi slitið - kl. 18:45.
Fundargerðin lögð fram.