Fara í efni

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

263. fundur 18. október 2017 kl. 17:00 - 18:45 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir forseti
  • Sigrún Blöndal 1. varaforseti
  • Gunnar Jónsson bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer bæjarfulltrúi
  • Páll Sigvaldason bæjarfulltrúi
  • Sigvaldi H Ragnarsson bæjarfulltrúi
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir varamaður
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir varamaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Eyrún Arnardóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 399

1709011F

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 400

1709022F

Til máls tók: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunun.

Fundargerðin lögð fram.

3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 401

1710001F

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 3.6 og bar fram fyrirspurn. Gunnar Jónsson sem ræddi lið 3.6 og svaraði fyrirspurn. Páll Sigvaldason, sem ræddi lið 3.6. og Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 3.6 og þakkaði góð svör.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að eftirfarandi aðilar verði skipaðir varamenn í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs Austursvæði fh. Fljótsdalshéraðs: Guðmundur Sveinsson Kröyer og Stefán Ólason.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 3.2 201701003 Fjármál 2017
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • 3.3 201702139 Fjárhagsáætlun 2018
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að undirrita kjörskrárstofninn og leggja fram á tilsettum tíma.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • 3.6 201710002 Samgöngumál
    Bókun fundar Í bæjarráði var farið yfir greinargerð Vegagerðarinnar vegna flutnings þjóðvegar 1 af Breiðdalsheiði yfir á Suðurfjarðaveg Bæjarráð telur að fyrirliggjandi greinargerð og fleiri gögn sem bæjarráð hefur aðgang að, veki fleiri spurningar en svör.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og óskar eftir því að vegamálastjóri komi hið fyrsta til fundar með bæjarráði Fljótsdalshéraðs, til að svara þeim spurningum sem vaknað hafa hjá bæjarráði. Æskilegt væri að sá fundur ætti sér stað sem allra fyrst.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 402

1710007F

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Sigrún Blöndal, sem ræddi liði 4.3 og 4.5.

Fundargerðin lögð fram.

5.Atvinnu- og menningarnefnd - 56

1709013F

Fundargerðin lögð fram.

6.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 77

1709010F

Til máls tóku: Ragnhildur Rós Indriðadóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Gunnar Jónsson, sem ræddi liði 6.2 og 6.3.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar ON (Orka náttúrunnar ohf.), sækir um byggingarleyfi fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla á lóð N1 á Egilsstöðum. Málið var áður á dagskrá 13. september sl.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa það til úrlausnar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur fjallað um umsókn frá Ríkiseignum um stofnun nýrrar landeignar í Fasteignaskrá úr landi Kirkjubæjar. Mál var áður á dagskrá þann 13. september sl.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir eftirfarandi bókun umhverfis- og framkvæmdanefndar:
    Erindi Ríkiseigna um stofnun lóða á jörðunum Kirkjubæ og Unaósi, er hafnað. Fyrirliggjandi gögn bera ekki með sér að landskipti hafi fengið málsmeðferð samkvæmt 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004, sbr. 12. gr. laganna um landskipti. Þá virðast gögnin ekki uppfylla kröfur sem gerðar eru til gerninga um landskipti. Þá lýsir nefndin nokkurri furðu yfir efni tillagna um skiptingu bújarðanna, sem m.a. fela í sér að húsakostur, þar með talið öll útihús bújarðanna, eru skilin frá landi þeirra. Með því er stofnað til óvissu um nýtingu eignanna sem bújarða til framtíðar. Bent er á þá skilgreiningu jarðalaga að lögbýlisréttur merkir í lögunum sérhverja jörð sem hefur þann húsakost og það landrými eða aðstöðu að unnt sé að stunda þar landbúnað eða aðra atvinnustarfsemi og var skráð í jarðaskrá ráðuneytisins 1. desember 2003. Jafnframt er vísað til þess að VII. kafli jarðalaga og ábúðarlög nr. 80/2004, fjalla með almennum hætti um ráðstöfun ríkisjarða til ábúðar og réttindi og skyldur ábúenda og eigenda jarða. Það er óeðlilegt að íslenska ríkið gangi fyrir með skiptingu og ráðstöfun jarða, sem virðast hafa það að markmiði að fara í kringum almennar reglur laga. Um stöðu jarðanna Unaóss og Kirkjubæjar er vísað til fyrri bókana Fljótsdalshéraðs, þar sem hvatt hefur verið til þess að Ríkiseignir stuðli að áframhaldandi ábúð á jörðunum.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Umsókn frá Ríkiseignum um stofnun nýrrar landeignar í Fasteignaskrá úr landi Unaós. Málið var áður á dagskrá umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 13. september sl.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og hafnar
    erindinu. Vísað er frekar til bókunar máls nr. 201708094 - Umsókn um stofnun nýrrar lóðar við Kirkjubæ.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 6.6 201702095 Rafbílavæðing
    Bókun fundar Fyrir liggur samantekt á tilboðum í rekstur rafhleðslustöðva. Málið var áður á dagskrá 13. september sl.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn samþykkir að visa málinu til nánari skoðunar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Umsókn um skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá/Breiðavað 3

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstórn erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að afgreiða málið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Umsókn barst frá Guðlaugi Pálssyni f.h. N1. um lóð að Iðjuseli 3.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að úthluta lóðinni til umsækjanda. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ganga frá samning um úthlutun lóðarinnar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • 6.10 201606027 Selskógur deiliskipulag
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram erindi frá Landsneti, Árna Jóni Elíssyni þar sem óskað er eftir að setja upp veðurmælistöð í Þórudal.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindi með fyrirvara um samþykki landeiganda.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt er fram erindi frá Birni Hallgrímssyni um að breyta aðstöðuhúsi í íbúð.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis-og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.

7.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 78

1709024F

Til máls tóku: Ragnhildur Rós Indriðadóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Sigvaldi Ragnarsson, sem vakti athygli á hugsanlegu vanhæfi sínu vegna liðar 7.5, og gerði athugasemd við ónákvæma bókun í afgreiðslu málsins og bar fram fyrirspurn. Forseti úrskurðaði Sigvalda ekki vanhæfan. Gunnar Jónsson, sem lýsti yfir vanhæfi sínu vegna liðar 7.4 og úrskurðaði forseti hann vanhæfan og Páll Sigvaldason, sem ræddi lið 7.5 og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar vísað til gerðar fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs 2018.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og mannvirkjanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Hulda Elísabeth Daníelsdóttir, fyrir hönd Gistihússins Egilsstöðum, óskar eftir að fá að setja upp fána á ljósastaura við heimreiðina að Egilsstöðum.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og gerir ekki athugsemdir við áformin. Bent er á að leita beri samþykkis eiganda ljósastauranna og landeigenda að heimreið að Egilsstöðum fyrir áformum þessum.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkv. en 1 var fjarverandi (G.J.)
  • Bókun fundar Lagt fram.
  • Bókun fundar Lagt er fram erindi frá Eflu ehf., Kömmu Gísladóttur fyrir hönd Ylstrandar ehf. Sótt er um óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem bílastæði eru færð nær þjóðvegi og þeim fjölgað.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afgreiða málið samkvæmt 2. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Umsókn um lóðinna Dalsel 2- 6 frá MVA ehf.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lögð eru fram gögn frá Árna Geirssyni hjá Alta ehf., varðandi breytingu á aðalskipulagi - Davíðsstaðir.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Að tillögu umhverfs- og framkvæmdnefndar samþykkir bæjarstjórn að fornminjaskráning verði unnin jafnhliða gerð deiliskipulags.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram erindi frá NAUST um stefnu í plastnotkun.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og beinir því til fyrirtækja og íbúa að vera meðvituð um notkun plasts og skaðsemi þess gagnvart umhverfinu og leita leiða til að draga úr plastnotkun.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Erindi frá Kristínu Atladóttir ábúanda á Hólshjáleigu, varðandi uppsetningu ljósastaurs við bæinn.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhvefis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að afgreiða málið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Erindi frá HAUST þar sem óskað er eftir umsögn vegna snyrtistofu að Koltröð 13.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt er fram erindi frá Óskari Benediktssyni um skráningu nýrra fasteigna úr landi Beinárgerðis.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og gerir ekki athugsemd við erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa afgreiðslu þess.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni varðandi efnistöku í Ásklifsnámu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni varðandi efnistöku í Axarárneseyranámu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

8.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 253

1709016F

Til máls tóku: Sigrún Blöndal, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Páll Sigvaldason, sem ræddi lið 8.1. og 8.2. og skýrslu H.A. um úttektar á skólamálum á Fljótsdalshéraði og bar hann fram fyrirspurnir vegna hennar. Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 8.5. og bar fram fyrirspurnir. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi skólaskýrsluna og svaraði fyrirspurnum. Gunnar Jónsson, sem ræddi skólaskýrsluna. Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi 8.5. og ítrekaði fyrirspurn sína. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 8.5 og svaraði fyrirspurn og Björn Ingimarsson, sem ræddi lið 8.5 og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.

9.Félagsmálanefnd - 157

1709004F

Til máls tók: Sigrún Blöndal, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin lögð fram.
  • 9.1 201709010 Beiðni um þátttöku í kostnaði í rekstri sumarbúða
    Bókun fundar Afgreiðsla félagsmálanefndar staðfest.
  • 9.2 1406083 Barnaverndarmál
  • 9.3 201709052 Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Fljótsdalshéraði.
    Bókun fundar Tillaga starfsmanns tekin fyrir.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn fyrirliggjandi tillögu um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Fljótsdalshéraði.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

  • 9.4 201709057 Hlymsdalir -starfsmannamál.
    Bókun fundar Afgreitt af Félagsmálanefnd.

10.Íþrótta- og tómstundanefnd - 35

1709012F

Fundargerðin lögð fram.

11.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 60

1709023F

Til máls tók: Björn Ingimarsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin lögð fram.
  • 11.1 201610001 Kynning á hlutverki ungmennaráðs
    Bókun fundar Til kynningar.
  • 11.2 201410137 Kynning á samþykktum ungmennaráðs
    Bókun fundar Til kynningar.
  • 11.3 201709092 Kosning formanns og varaformanns Ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs 2017-2018
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn óskar nýkjörnum formanni, Erlu Jónsdóttur og varaformanni Ástu Dís Helgadóttur til hamingju með kosninguna og væntir öflugs starfs hjá ungmennaráði á komandi vetri og vonast eftir góðu samstarfi.
    Bæjarstjóra falið að boða sameiginlegan fund ungmennaráðs og bæjarstjórnar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


  • 11.4 201709091 Markmið og verkefni Ungmennaráðs 2017-2018
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 11.5 201705177 Fjárhagsáætlun Ungmennaráðs 2018
    Bókun fundar Fjárhagsáætlun ungmennaráðs vísað til gerðar fjárhagsáætlunar Fljótsdalsherðas 2018.
  • 11.6 201010100 Tímasetning funda ungmennaráðs
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 11.7 201709089 Önnur mál
    Bókun fundar Til kynningar.

12.Jafnréttisnefnd Fljótsdalshéraðs - 162

1710005F

Til máls tók: Sigvaldi Ragnarsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin lögð fram.
  • 12.1 201606004 Framkvæmdaáætlun jafnréttisáætlunar 2015 - 2019
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn samþykkir að vísa ábendingum Jafnréttisnefndar um jafnlaunakerfi og kannanir á starfsánægju starfsmanna, ásamt fleiri könnunum, til bæjarráðs til frekari skoðunar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 12.2 201501006 Starfið framundan.
    Bókun fundar Fjárhagsáætlun jafnréttisnefndar vísað til gerðar fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs 2018.
  • 12.3 201710022 Landsfundur jafnréttisnefnda 2017
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

13.Umsókn um tækifærisleyfi-Menntaskólinn-Þemadansleikur

201710044

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna einkasamkvæmis Menntaskólans á Egilsstöðum, sem haldið verður á Café Egilsstöðum 27. október næstkomandi.

Fyrir liggur jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti og að byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.
Bæjarstjórn tekur fram að ekki liggur fyrir bæjarstjórn úttekt eldvarnareftirlits.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?