Fara í efni

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

244. fundur 05. október 2016 kl. 18:00 - 19:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir forseti
  • Sigrún Blöndal 1. varaforseti
  • Stefán Bogi Sveinsson 2. varaforseti
  • Gunnar Jónsson aðalmaður
  • Þórður Mar Þorsteinsson bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer bæjarfulltrúi
  • Páll Sigvaldason bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir varamaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.

1.1.Umsókn um leyfi sem vistforeldri

0

Lagt fram.

1.2.Tjarnarland urðunarstaður 2016

201604184

Lagt fram til kynningar.

1.3.Umhverfis- og framkvæmdanefnd fjárhagsáætlun 2017

201605056

Málið er í vinnslu.

1.4.Umsókn um lóð/Hamrar 2

201607044

Lagt er fyrir erindi lóðarumsækjanda um skil á lóð.
Umsækjandi fyrir hönd Strandatindar ehf. hefur óskað eftir að skila lóðinni Hamrar 2 sem honum var úthlutað á fundi Umhverfis- og framkvæmdanefndar nr. 52 þann 3.8.2016.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindi umsækjanda og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að setja lóðina á lista yfir lausar lóðir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 239

1609018

Til máls tóku:

Fundargerðin lögð fram.

2.1.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2017

201609035

Í vinnslu.

2.2.Skýrsla fræðslustjóra

201108127

Lagt fram til kynningar.

3.Félagsmálanefnd - 147

1609012

Til máls tóku: Þórður Mar Þorsteinsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 6.10 og Þórður Mar Þorsteinsson, sem ræddi lið 6.10.

Fundargerðin lögð fram.

3.1.Yfirlit yfir umfang og eðli barnaverndartilkynninga 2016

201605137

Lagt fram til kynningar.

3.2.Niðurgreiðslur Fljótsdalshéraðs vegna daggæslu í heimahúsum.

201609053

Erindi um hækkun á niðurgreiðslu Fljótsdalshéraðs til starfandi dagmæðra var tekið til umfjöllunar í félagsmálanefnd. Niðurgreiðslur til dagmæðra hafa ekki hækkað síðan 1. janúar 2015.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn 12% hækkun sem tekur gildi frá 1. október 2016. Upphæðin rúmast innan fjárhagsramma um dagvist í heimahúsum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.3.Samstarf félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs við félag eldri borgara.

201609054

Í vinnslu.

3.4.Tilkynning um friðlýsingu Hússtjórnarskólans á Hallormsstað

201609072

Lagt fram til kynningar. Sjá einnig bókun undir lið 1.4.

3.5.Barnaverndarmál

0

Lagt fram.

3.6.Barnaverndarmál

0

Lagt fram.

3.7.Barnaverndarmál

0

Lagt fram.

3.8.Barnaverndarmál

0

Lagt fram.

3.9.Fjárhagsáætlun 2017

201604089

Í vinnslu.

3.10.Bakvaktir

201609078

Í vinnslu.

4.Jafnréttisnefnd Fljótsdalshéraðs - 59

1609024

Til máls tók: Sigrún Blöndal, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

4.1.Landsfundur Jafnréttisnefnda 2016

201609106

Á fundi jafnréttisnefndar fór formaður yfir það helsta sem kom fram á landsfundi jafnréttisnefnda sem haldinn var á Akureyri 16. september.
Þar var meðal annars nokkuð fjallað um kynjaða áætlunargerð hjá sveitarfélögum, en það er hlutur sem sveitarstjórnum ber að hafa í huga við gerð fjárhagsáætlana.

Einnig var rætt um kynjafræðikennslu í skólum og nauðsyn þess að styðja við kennara í þeirra umfjöllun og kennslu um jafnréttismál.

Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn tekur undir með jafnréttisnefnd og beinir því til fræðslunefndar að á sameiginlegum fræðsludegi skólanna verði fenginn fyrirlesari sem fjalli um kynjafræði og kennslu í henni á leik- og grunnskólastigi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.2.Framkvæmdaáætlun jafnréttisáætlunar 2015 - 2019

201606004

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með jafnréttisnefnd og leggur til að fyrirhugaður fræðsludagur fyrir stjórnendur og kjörna fulltrúa verði haldinn nú í október. Þangað verði fengnir starfsmenn Jafnréttisstofu til að fara yfir ýmis mál sem tengjast þeirra starfsemi og snerta jafnréttismál sveitarfélaga. Mögulega mætti skipuleggja slíkan fund í tengslum við forstöðumannafund sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.3.Starfið framundan.

201501006

Lagt fram til kynningar.

5.Atvinnu- og menningarnefnd - 40

1609013

Til máls tóku: Guðmundur Kröyer, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 3.4 og 3.6. og bar fram fyrirspurnir. Guðmundur Kröyer, sem ræddi liði 3.4 og 3.6 og svaraði fyrirspurnum. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 3.4 og 3.6 og bar fram fyrirspurn. Guðmundur Kröyer, sem ræddi lið 3.6 og svaraði fyrirspurn. Ragnhildur Rós Indriðadóttir, sem ræddi lið 3.4 og Þórður Mar Þorsteinsson, sem ræddi lið 3.6.

Fundargerðin lögð fram.

5.1.Fjármál 2016

201601001

Lagt fram til kynningar.

5.2.Fundargerð 213. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

201609085

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.3.Verndar- og orkunýtingaráætlun Austurlandi

201609063

Í vinnslu.

5.4.Tilkynning um friðlýsingu Hússtjórnarskólans á Hallormsstað

201609072

Lagt fram bréf frá Minjastofnun Íslands, dagsett 15. september 2016 þar sem tilkynnt er um friðlýsingu Handverks- og hússtjórnarskólans á Hallormsstað. Friðlýsingin nær til ytra borðs skólahússins, ásamt upprunalegum innréttinum í vefstofu, skrifstofu skólastjóra, anddyri og svokallaðri Höll. Undanþegnar friðlýsingu eru seinni tíma viðbyggingar og múrklæðning á útveggjum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og fagnar ákvörðun um friðlýsingu þessarar merkilegu byggingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.5.Uppbygging á innviðum fyrir rafmagnsbíla á Austurlandi

201609080

Bæjarstjórn staðfestir bókun bæjarráðs, en að öðru leyti er málið í vinnslu.

6.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 357

1609022

Til máls tók: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

6.1.Fjármál 2016

201601001

Lagt fram til kynningar.

6.2.Fjárhagsáætlun 2017

201604089

Í vinnslu.

6.3.EBÍ Ágóðahlutagreiðsla 2016

201609110

Lagt fram til kynningar.

6.4.Alþingiskosningar 2016

201609048

Á fundi bæjarráðs var lagður fram stofn til kjörskrár, fyrir alþingiskosningarnar 29. október 2016.

Eftirfarandi tillaga lög fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að láta yfirfara kjörskrárstofninn og að því búnu undirrita hann og leggja fram kjörskrá, skv. lögum og reglum þar um. Kjörskrá skal leggja fram eigi síðar en 19. október.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 356

1609015

Til máls tók: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun. Einnig ræddi hann sérstaklega liði 1.2 og 1.4.

Fundargerðin lögð fram.

7.1.Fjárhagsáætlun 2017

201604089

Afgreiðslu atvinnu- og menningarnefndar vísað til vinnslu fjárhagsáætlunar 2017.

7.2.Egilsstaðastofa

201501023

Fyrir liggur samkomulag um Egilsstaðastofu frá 11. febrúar 2015. Samkomulag þetta gildir til ársloka 2016. Það skal tekið til endurskoðunar fyrir 1. október 2016 m.a. með mögulega framlengingu í huga.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að samningur um Egilsstaðastofu verði endurskoðaður með framlengingu í huga. Samþykkt að Guðmundur Sveinsson Kröyer og Ásgrímur Ásgrímsson verði fulltrúar nefndarinnar í viðræðuhópi um málið. Lagt er til að aðrir aðilar að samningnum skipi einnig fulltrúa í hópinn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.3.Sjötíu ára afmæli Egilsstaðakauptúns.

201602100

Málið er í vinnslu.

7.4.Fagráð Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs

201609073

Fyrir liggja tilnefningar frá Listaháskóla Íslands, Listfræðafélagi Íslands og Sviðslistasambandi Íslands um fulltrúa í fagráð Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs.

Eftirfarandi tillaga lög fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að eftirfarandi verði fulltrúar í fagráði Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs til tveggja ára skv. samþykktum fyrir miðstöðina:

- Fyrir Listaháskóla Íslands, Una Þorleifsdóttir aðalmaður og Alexander Graham Roberts varamaður.
- Fyrir Listfræðafélag Íslands, Baldvina S. Sverrisdóttir aðalmaður og Magnús Gestsson varamaður.
- Fyrir Sviðslistasamband Íslands, Marta Nordal aðalmaður og Orri Huginn Ágústsson varamaður.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.5.Húsafriðunarsjóður 2016/umsókn um styrk

201607001

Fyrir liggur svarbréf frá Minjastofnun Íslands, dagsett 15. september 2016, við umsókn Fljótsdalshéraðs, þar sem fram kemur að sveitarfélaginu er veittur styrkur til að kanna og meta svæði sem geta komið til greina sem verndarsvæði í byggð.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og fagnar styrknum og felur starfsmanni nefndarinnar að leita leiða til að koma verkefninu í framkvæmd.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.6.Áfangastaðir ferðamanna á Fljótsdalshéraði

201506057

Fyrir liggja tillögur starfshóps um forgangsröðun uppbyggingar áfangastaða á Fljótsdalshéraði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og fagnar þeirri forgangsröðun sem birtist í tillögunum og samþykkir hana fyrir sitt leyti.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkv. en 1 sat hjá (SBS).

Stefán Bogi Sveinsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.

8.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 55

1609017

Til máls tók: Ragnhildur Rós Indriðadóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

8.1.Áfangastaðir ferðamanna á Fljótsdalshéraði

201506057

Lögð er fram tillaga vinnuhóps um forgangsröðun uppbyggingu áhugaverðra áfangastaða á Fljótsdalshéraði.
Nú fer að líða að því að auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Tillaga vinnuhóps er því lögð fram til grundvallar þeirri ákvörðun er snýr að styrktarumsókn.
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og þakkar hópnum fyrir vel unnin störf.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn þá forgangsröðun sem kemur fram í skjali vinnuhópsins.
Lagt er til að sami háttur verði hafður við gerð umsóknar til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða eins og fyrir yfirstandandi ár.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkv. en 1 sat hjá (SBS).

8.2.Áskorun um tiltekt

201609083

Lögð er fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefndina tillaga að auglýsingu, Áskorun um að fjarlægja númerslausa bíla, kerrur og fleira af almennum bílastæðum, götum og óbyggðum lóðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess í samstarfi við HAUST.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.3.Eftirlitsskýrsla HAUST/opin leiksvæði í þéttbýli Fljótsdalshéraðs

201609070

Í vinnslu.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?