Fara í efni

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

176. fundur 17. apríl 2013 kl. 17:00 - 19:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson aðalmaður
  • Eyrún Arnardóttir aðalmaður
  • Sigrún Blöndal 2. varaforseti
  • Árni Kristinsson aðalmaður
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir varamaður
  • Karl Sigfús Lauritzson aðalmaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Sigvaldi H Ragnarsson 1. varaforseti
  • Jónas Guðmundsson varamaður
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson

1.

1.1.Styrkvegir 2013

201304060

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu umhverfis- og héraðsnefndar felur bæjarstjórn framkvæmda- og þjónustufulltrúa að sækja um fjármagn fyrir eftirfarandi framkvæmdum í styrkvegasjóð Vegagerðar ríkisins:

Bera ofan í slóð sem tengir Fella- og Fljótsdalsheiði og Klausturselsveg 1.500.000.- Lagfæra slóð úr Fram-Fellum upp á austanverða Fellaheiði 1.000.000.- Lagfæra slóð upp frá Fjallaskarðskofa upp í Fjallaskarð 2.000.000.- Smalaslóði á Fjarðarheiði 500.000.- Slóði á Héraðsand 800.000.- Lagfæring á vegi upp með Axará að Ódáðavötnum 900.000.- Almennt viðhald vega t.d. Smjörvatnsheiði, útsýnisskífa á vestari Fjallgarði, Hellisheiði/Kattardalur, Gaukstaðir og fl. 3.000.000.-

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.2.Grunnskólar - frumáætlun 2014

201304036

Lagt fram til kynningar.

1.3.Tónlistarskólar - framkvæmdir og viðhald

201304038

Lagt fram til kynningar.

1.4.Tónlistarskólar - frumáætlun 2014

201304035

Lagt fram til kynningar.

1.5.Leikskólar - framkvæmdir og viðhald

201304039

Lagt fram til kynningar.

1.6.Leikskólar - frumáætlun 2014

201304034

Lagt fram til kynningar.

1.7.Umsókn um heimild til rannsóknarvinnu í skólastofnun

201304040

Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.

1.8.Leikskólinn Tjarnarskógur - beiðni um heimild til viðbótar starfsmannafunda

201303031

Niðurstaða fundar formanns fræðslunefndar með foreldraráði og leikskólastjóra var sú að leikskólinn myndi opna kl. 10 þriðjudaginn 21. maí og starfsmenn sitja fund milli kl. 08:00-10:00. Foreldrar myndu taka að sér að halda leikskólanum opnum eftir hádegi frá kl. 13:00 til 17:00 föstudaginn 14. júní sem yrði jafnvel sumarhátíðardagur skólans. Starfsmenn myndu sitja fund frá kl. 13:00 til 18:00 og fá greitt samkvæmt því. Áætlaður viðbótarlaunakostnaður, verði þessi leið farin, er áætlaður u.þ.b. kr. 850.000.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 184

1304007

Til máls tóku: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun. Aðrir sem tóku til máls: Karl Lauritzson sem ræddi lið 5.1.

Fundargerðin staðfest.

2.1.Grunnskólar - framkvæmdir og viðhald

201304037

Lagt fram til kynningar.

2.2.Friðlýsingar á Fljótsdalshéraði

201209108

Fulltrúar L og D lista lögðu fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn samþykkir að efnt verði til kynningarfundar um tillögur að friðlýsingu svæða í sveitarfélaginu. Þar verði fenginn fulltrúi frá Umhverfisstofnun sem geri grein fyrir þeim tillögum sem fram koma í náttúruverndaráætlun, auk þess sem þar fari fram kynning og umræða um mismunandi flokka friðlýsinga. Fulltrúar í umhverfis- og héraðsnefnd geri grein fyrir möguleikum sem ræddir hafa verið í nefndinni um friðlýst svæði. Fundurinn verði haldinn fyrir sumarleyfi bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Umhverfis- og héraðsnefnd Fljótsdalshéraðs - 56

1304008

Til máls tóku: Eyrún Arnardóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun. Aðrir sem tóku til máls: Sigrún Blöndal sem kynnti og lagði fram tillögu að lið 4.1, Eyrún Arnardóttir sem ræddi lið 4.1.

Fundargerðin staðfest.

3.1.Umsókn um byggingarleyfi

201304045

Í vinnslu.

3.2.Umsókn um byggingarleyfi/breytingar

201304029

Í vinnslu.

3.3.Kröflulína III, aðalskipulagsbreyting

201301260

Erindi dags. 26.02.2013 þar sem Jakob Gunnarsson Skipulagsstofnun, óskar eftir umsögn sveitarfélagsins um meðfylgjandi tillögu að matsáætlun ofangreindrar framkvæmdar skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 106/2000 m.s.br. og 15. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar gerir bæjarstjórn ekki athugasemd við matsáætlunina.

Samþykkt með 8 atkvæðum en 1 var fjarverandi (SHR).

3.4.Deiliskipulag námu á Kollsstaðamóum

201304022

Í vinnslu.

3.5.SogM, fjárfestingar og fjárhagsáætlun 2014

201304063

Í vinnslu.

3.6.Endurskoðun aðalskipulags Fljótsdalshrepps

201212011

Í vinnslu.

3.7.Fjárhagsáætlun 2014

201302034

Lagt fram til kynningar.

4.Ungt fólk og lýðræði

201203046

Til máls undir þessum lið tók: Björn Ingimarsson.

Lagt fram til kynningar erindi frá Ungmennafélagi Íslands, dag. 2. apríl 2013 með ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Egilsstöðum dagana 20. - 22. mars sl.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn vill þakka skipuleggjendum og þátttakendum á ráðstefnunni kærlega fyrir komuna. Fulltrúar frá sveitarfélaginu sóttu hluta ráðstefnunnar og var hún fróðleg og ýmislegt sem þar kom fram sem sveitarfélög geta nýtt sér í sínum verkefnum. Bæjarstjórn tekur undir ályktun ungmenna sem samþykkt var á ráðstefnunni og heitir því að leitast við að tryggja virka þátttöku ungmenna í ákvarðanatöku innan sveitarfélagsins, m.a. í gegnum starf Ungmennaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.1.Umsókn um styrk til að gera stuttmynd

201303047

Afgreiðsla menningar- og íþróttanefndar staðfest.

4.2.Umsókn um ferðastyrk til Runavíkur 2013

201303008

Á fundi menningar- og íþróttanefndar undir þessum lið sat Davíð Sigurðarson formaður Hattar.

Fyrir liggur umsókn frá Hetti um styrk sem ætlaður er til að aðstoða íþróttafélög á Fljótsdalshéraði til að ferðast til Runavíkur í Færeyjum. Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 12. mars 2013.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn að styrkja Íþróttafélagið Hött vegna ferðar félagsins til Runavíkur, um kr. 150.000, til að kynna sér og koma á samstarfi íþróttafélaga sveitarfélaganna um barna og ungmennastarf. Fjármagnið verði tekið af lið 06.89.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.3.Move Week 2013

201303151

Fyrir liggur tölvupóstur og bréf frá UMFÍ, undirritað af Sabínu S. Halldórsdóttur, þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu Move Week, sem hefur það markmið að hvetja til hreyfingar. Verkefnið er á vegum International Sport and Culture Association en UMFÍ er samstarfsaðili.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn þátttöku í verkefninu og felur starfsmanni að undirbúa það m.a. í samstarfi við íþróttafélög og stofnanir sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.4.Friðarhlaup um allt Ísland

201303144

Fyrir liggur tölvupóstur og bréf dagsett 23. mars 2013, undirritað af Torfa Suren Leóssyni f.h. Friðarhlaupsins, þar sem Fljótsdalshéraði er boðið að taka þátt í verkefninu Friðarhlaup um allt Ísland og planta friðartré 26. júní þegar Friðarhlaupið kemur til Egilsstaða.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn þátttöku í verkefninu en vísar óskum um staðsetningu fyrir tréð til umhverfis- og héraðsnefndar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.5.Bjartur 2013 - Rathlaup í Jökuldalsheiði. Kynning og ósk um stuðning

201302019

Fyrir liggur bréf, dagsett 5. febrúar 2013, með beiðni um stuðning við verkefnið Bjartur 2013, sem er ratleikur og fram fer á Egilsstöðum og í Fellabæ í júní og á Jökulsdalsheiði í lok ágúst. Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 12. febrúar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn að styrkja verkefnið um kr. 70.000 sem tekið verði af lið 06.89.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.6.Beiðni um styrk vegna Sumardvalar á Eiðum fyrir fólk með fötlun

201303157

Afgreiðsla menningar- og íþróttanefndar staðfest.

4.7.Beiðni um styrk vegna lokaritgerðar um Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi

201303054

Afgreiðsla menningar- og íþróttanefndar staðfest.

4.8.Deiliskipulag flugvallarsvæði

201012090

Í vinnslu.

4.9.Menningar- og íþróttanefnd, uppgjör 2012

201303101

Lagt fram til kynningar.

4.10.Minjasafn Austurlands

201207031

Lagt fram til kynningar.

4.11.Bókasafn Héraðsbúa

201303074

Í vinnslu.

5.Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 46

1304001

Til máls tóku: Eyrún Arnardóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Aðrir sem tóku til máls: Árni Kristinsson sem ræddi lið 6.8, Eyrún Arnardóttir sem ræddi lið 6.8.

Fundargerðin staðfest.

5.1.Fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands

201303091

Lagt fram til kynningar.

5.2.Fræðslusvið - uppgjör 2012

201304032

Lagt fram til kynningar.

5.3.Fræðslusvið - fjárhagsáætlun 2014 heild - frumvinna

201304033

Lagt fram til kynningar.

5.4.Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2013

201304041

Lagt fram til kynningar.

5.5.Atvinnumálanefnd, uppgjör 2012

201303100

Lagt fram til kynningar.

5.6.Fundargerðir SO 2013

201301244

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.7.Fundur stýrihóps um Sjálfbærniverkefni á Austurlandi, 21.mars 2012

201304008

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að gera breytingu á fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn verkefnisins á þann veg að Freyr Ævarsson verkefnisstjóri umhverfismála taki sæti Björns Ingimarssonar þar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.8.Fundargerð 147. fundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

201304016

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.9.Umsóknir í endurmenntunarsjóð 2013

201303018

Afgreiðsla stjórnar endurmenntunarsjóðs staðfest.

5.10.Endurmenntunarsjóður Fljótsdalshéraðs - 13

1303004

Fundargerðin staðfest.

5.11.Atvinnumálasjóður 2013

201211032

Í vinnslu.

5.12.Fyrirkomulag kynningar- og auglýsingamála 2013

201304011

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu atvinnumálanefndar þess efnis að lagðar verði kr. 400.000 í kynningarbækling um Héraðið. Fjármagnið verði tekið af lið 13-63.

Jafnframt að starfsmanni nefndarinnar verði falið að undirbúa gerð kynningarvefs; visitegilsstadir.is í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir. Fjármagn til verkefnisins, allt að kr. 1.200.000 verði tekið af lið 13-63.

Samþykkt samhljóða með handauppréttinu.

5.13.Fjárhagsáætlun 2014

201302034

Í vinnslu.

5.14.Fundur Byggingarnefndar um hjúkrunarheimili 10.apríl 2013

201304018

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.15.Sóknaráætlun Austurlands 2013

201303073

Eftirfarandi tillaga lögð fram.

Bæjarstjórn tekur undir með atvinnumálanefnd og fagnar því að áhersla er lögð á markaðssetningu svæðisins, m.a. varðandi Egilsstaðaflugvöll.

Hins vegar saknar bæjarstjórn þess að skógræktar sé ekki getið sem eins af sóknarfærum svæðisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.16.Atvinnuþróunarsjóður Austurlands 2013

201303092

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn tekur undir þær tillögur sem fram komu í gögnum og leggur til að unnið verði samkvæmt þeim.

Bæjarstjórn gerir þó fyrirvara um það hlutfall sem gert er ráð fyrir að Austurbrú geti ráðstafað til eigin verkefna og telur mikilvægt að sveitarfélögin komst að samkomulagi um þennan þátt.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu..

5.17.Aðalfundur Gróðrarstöðvar Barra ehf.v.2012

201303158

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna Björn Ingimarsson sem aðalmann í stjórn Gróðrarstöðvarinnar Barra ehf. og Gunnlaug Guðjónsson sem varafulltrúa. Tilnefning þessi er sameiginleg með Fljótsdalshreppi.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að Björn Ingimarsson fari með umboð og atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi Barra ehf.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.18.Tjaldsvæðið á Egilsstöðum, framkvæmdir og þjónusta á tjaldsvæðinu

201301022

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

5.19.Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs - 89

1304002

Fundargerðin staðfest.

5.20.Ársreikningur 2012

201303154

Var afgreitt undir lið 1 í þessari fundargerð.

5.21.Fjármál 2013

201301002

Lagt fram til kynningar.

6.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 230

1304003

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Eyrún Arnardóttir sem lýsti yfir vanhæfi sínu við afgreiðslu liðs 2.22. Aðrir sem tóku til máls: Gunnar Jónsson sem ræddi lið 2.22, Jónas Guðmundsson sem bar upp fyrirspurn varðandi lið 2.22, Gunnar Jónsson sem svaraði fyrirspurn vegna liðar 2.22, Sigrún Blöndal sem ræddi lið 2.7, 2.10 og 2.15.

Fundargerðin staðfest.

6.1.Fræðslumál og íbúaþróun

201304019

Lagt fram til kynningar.

6.2.Fundargerð 108. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands

201303146

Lagt fram til kynningar.

6.3.Suðursvæði afvötnun

201304017

Í vinnslu.

6.4.Umsókn um leyfi til að setja upp upplýsingaskilti

201303152

Erindi dagsett 25.03.2013 þar sem Hilmar Sigurjónsson kt.091151-4219, fyrir hönd Félags Húseigenda í Úlfsstaðaskógi, sækir um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti hægra megin vegar upp að sumarhúsasvæðunum í Úlfsstaðaskógi og Einarsstöðum. Fyrir liggur afstöðumynd og mynd af skiltinu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn erindi umsækjanda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.5.Aðalfundur húsfélagsins Miðvangi 6

201304002

Lagt fram til kynningar.

6.6.Brúarásskóli orkumál

201304015

Í vinnslu.

6.7.Ársskýrsla heilbrigðiseftirlits Austurlands 2012

201304012

Lagt fram til kynningar.

7.Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs - 93

1304005

Til máls tóku: Jónas Guðmundsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Sigvaldi H. Ragnarsson sem lýsti sig vanhæfan við afgreiðslu liðar 3.11. Aðrir sem tóku til máls voru: Árni Kristinsson sem ræddi lið 3.11, Gunnar Jónsson sem ræddi lið 3.11.

Fundargerðin staðfest.

7.1.Kjörskrá Alþingiskosninga 27.apríl 2013

201304028

Kjörskráin var afgreidd á aukafundi bæjarstjórnar þann 15. apríl sl.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma upp fram á kjördag vegna Alþingiskosninga 27. apríl nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Ársreikningur 2012

201303154

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, Karl Lauritzson, Ragnhildur Rós Indriðadóttir, Björn Ingimarsson, Árni Kristinsson, Gunnhildur Ingvarsdóttir, Gunnar Jónsson.

Björn Ingimarsson bæjarstjóri lagði fram ársreikning Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 til síðari umræðu.

Helstu niðurstöðutölur eru sem hér segir:

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2012 námu 3.034 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.695 millj. kr.

Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði og afskriftir námu alls 2.285 millj. kr. í samanteknum ársreikningi 2012 fyrir A og B hluta, þar af námu rekstrargjöld A hluta 2.145 millj. kr. Afskriftir ársins í A og B hluta námu 264 millj. og þar af 170 millj. í A hluta. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 512 millj. í samanteknum A og B hluta, þar af 401 millj. í A hluta.

Eftir fjármagnsliði og afskriftir var rekstarafkoma ársins neikvæð um 27 millj. kr. í samanteknum A og B hluta. Þar af var afkoma A-hluta neikvæð um 22 millj. kr. Fyrir fjármagnsliði var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 485 millj.kr., þar af 379 millj. kr. í A hluta.

Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 505 millj. kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af er handbært fé frá rekstri í A hluta um 342 millj. kr.


Fjárfestingahreyfingar ársins námu nettó 194 millj. kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af 43 millj. í A hluta.

Fjármögnunarhreyfingar ársins námu 426 millj. í samstæðu A og B hluta. Lántökur námu 50 millj. kr., en afborganir af lánum og leiguskuldbindingum námu 406 millj. kr. á árinu 2012.

Eignir samkvæmt efnahagsreikningi námu 7.197 millj. kr. í árslok 2012 fyrir A og B hluta, þar af nema heildareignir A hluta 5.585 millj. kr. í árslok 2012.

Heildarskuldir og skuldbindingar námu 7.276 millj. kr. í árslok 2012 fyrir A og B hluta. Þar af nema heildarskuldir og skuldbindingar A hluta 5.627 millj. kr.


Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2012 var neikvætt um 78 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af var eigið fé A hluta neikvætt um 41 millj. kr.

Skuldir og skuldbindingar á íbúa í samanteknum A og B hluta sveitarsjóðs voru í árslok 2.116 þús. kr. og eignir voru 2.093 þús. kr. á íbúa. Í A hluta sveitarsjóðs voru skuldir í árslok 1.637 þús. kr. á hvern íbúa. Eignir námu í árslok 1.615 þús. kr. á íbúa.


Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan samstæðureikning Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 við síðari umræðu, en fyrri umræða um hann fór fram 3. apríl sl. Ársreikningurinn var jafnframt sendur Kauphöllinni til birtingar sama dag, fyrir fund bæjarstjórnar.
Með ársreikningum liggja einnig fyrir eftirfarandi gögn.
a) Skýrsla löggiltra endurskoðenda.
b) Sundurliðunarbók fyrir alla sjóði og fyrirtæki samstæðunnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að halda borgarafund mánudaginn 29. apríl nk. þar sem ársreikningurinn verður kynntur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.1.Greiðslur til sveitarfélaga vegna alþingiskosninga 2013

201304014

Lagt fram til kynningar.

8.2.Fyrirspurn um niðurfellingu gatnagerðargjalda

201304010

Lagður fram tölvupóstur frá 2. apríl 2013, með fyrirspurn um niðurfellingu gatnagerðargjalda.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu bæjarráðs hafnar bæjarstjórn erindinu meðal annars með vísan til jafnræðissjónarmiða.

Bæjarstjórn samþykkir að tillögu bæjarráðs, að tímabundin heimild fjármálastjóra til frestunar innheimtu hluta gatnagerðargjalda, samkv. samþykkt bæjarstjórnar frá 19. janúar 2011 sem gillti til 31. 12. 2012, verði framlengd og gildi til 31. 12. 2013.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.3.Málefni Safnahúss

201211102

Lagt fram bréf frá Vopnafjarðarhreppi, en þar lýsir sveitarstjórn sig reiðubúna til að endurskoða resktur í safnahúsinu, enda verði þar horft bæði til fjárhagslegra- og faglegra þátta.

Þá hafa öll sveitarfélögin svarað fyrirspurn Fljótsdalshéraðs og öll með hliðstæðum hætti.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn óskar í framhaldi þessa eftir fundi fulltrúa sveitarfélagsins með fulltrúum stjórna allra safnanna í safnahúsinu til að ræða framhald málsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.4.Hrjótur Hjaltastaðaþinghá

201302140

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og telur að í stað þess að skoða áfram möguleika í tengslum við Hrjót, verði frekar unnið meira á grundvelli hugmynda sem áður hafa komið fram um jörðina Gröf.

Bæjarstjórn samþykkir að leggja til að skipaður veriði þriggja manna hópur til að kanna valkosti um að nýta jörðina Gröf að hluta sem friðland, að hluta sem skógræktarland og einnig til almennrar útivistar. Lagt er til að hópurinn verði skipaður einum fulltrúa bæjarráðs, einum fulltrúa frá umhverfis- og héraðsnefnd og einum fulltrúa frá bréfriturum. Óskað er eftir því að framangreindir aðilar taki afstöðu til hugmyndar bæjarráðs.

Samþykkt með 8 atkvæðum, en 1 var fjarverandi. (EA)

8.5.Skólaakstur - skipulag o.fl.

201211104

Í vinnslu.

8.6.Deiliskipulag flugvallarsvæði

201012090

Í vinnslu.

8.7.Aðalfundur Dvalarheimilis aldraðra 2013

201303020

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.8.Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands 2013

201304001

Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Ísl. verður haldinn þann 19. apríl nk.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að fela Birni Ingimarssyni að fara með umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á fundinum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 19:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?