Fara í efni

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

185. fundur 16. október 2013 kl. 17:00 - 19:45 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Stefán Bogi Sveinsson forseti
  • Gunnar Jónsson aðalmaður
  • Eyrún Arnardóttir aðalmaður
  • Páll Sigvaldason aðalmaður
  • Sigrún Blöndal 2. varaforseti
  • Árni Kristinsson aðalmaður
  • Karl Sigfús Lauritzson aðalmaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir aðalmaður
  • Sigvaldi H Ragnarsson 1. varaforseti
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.

1.1.Tónlistarskólinn í Fellabæ - fjárhagsáætlun 2014

201309122

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

1.2.Fyrirkomulag og framkvæmd íþróttakennslu í grunnskólum

201309037

Lagt fram til kynningar.

1.3.Hallormsstaðaskóli - skólaþing haust 2013

201310049

Í vinnslu.

1.4.Skóladagatal leikskólans Skógarsels 2013-2014

201310050

Afgreiðsla skólanefndar staðfest.

1.5.Hallormsstaðaskóli - fjármál

201308135

Lagt fram til kynningar.

1.6.Hallormsstaðaskóli - starfsmannamál

201308134

Lagt fram til kynningar.

1.7.Hallormsstaðaskóli - fjárhagsáætlun 2014

201310045

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.Skólanefnd Hallormsstaðaskóla - 22

1310008

Til máls tók: Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 4.5.

Fundargerðin staðfest.

2.1.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2014

201310036

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.2.Tónlistarskólinn í Brúarási - fjárhagsáætlun 2014

201309123

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.3.Ungt fólk og lýðræði 2013 - lokaskýrsla

201309038

Lagt fram til kynningar.

2.4.Tónlistarskólinn á Egilsstöðum - fjárhagsáætlun 2014

201309121

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.5.Leikskólinn Tjarnarskógur - nemendamál

201310034

Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.

2.6.Leikskólinn Tjarnarskógur - starfsmannamál

201310035

Fyrir liggur uppsögn Guðnýjar Önnu Þóreyjardóttur sem segir starfi sínu lausu frá og með næstu áramótum. Fræðslunefnd þakkar Guðnýju Önnu vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og óskar eftir því að fræðslufulltrúi undirbúi ráðningarferli leikskólastjóra, en staðan hefur þegar verið auglýst.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.7.Leikskólinn Hádegishöfði - fjárhagsáætlun 2014

201309125

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.8.Leikskólinn Tjarnarskógur - fjárhagsáætlun 2014

201309124

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.9.Brúarásskóli - fjárhagsáætlun 2014

201309036

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.10.Fellaskóli - fjárhagsáætlun 2014

201309035

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

2.11.Egilsstaðaskóli - nemendamál

201310033

Í vinnslu.

2.12.Starfsáætlun menningar- og íþróttanefndar fyrir 2014

201309072

Í vinnslu.

2.13.Drög að fjárhagsáætlun ársins 2014.

201309071

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

3.Félagsmálanefnd - 121

1309020

Fundargerðin staðfest.

3.1.Staða samninga sem menningar- og íþróttanefnd kemur að

201310015

Í vinnslu.

3.2.Fjármál 2013

201301002

Í vinnslu.

3.3.Kaup á öllum líkamsræktartækjum Héraðsþreks

201310014

Fyrir liggur bréf, dagsett 2. október 2013, frá Fjólu Margréti Hrafnkelsdóttur, f.h. óstofnaðs félags, þar sem óskað er eftir kaupum á öllum líkamsræktartækjum Héraðsþreks vegna áforma um opnun heilsuræktar á Egilsstöðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með menningar- og íþróttanefnd og hafnar erindinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.4.Skíðafélagið í Stafdal - ósk um afnot af íþróttamiðstöð

201310013

Í vinnslu.

3.5.Þinggerð og tillögur frá þingi UÍA sem haldið var 14. apríl 2013

201309027

Lagt fram til kynningar.

3.6.Fundargerð Minjasafns Austurlands frá 5. september 2013

201309077

Lagt fram til kynningar.

3.7.Fundargerð vallaráðs 23. 9. 2013

201310005

Fyrir liggur fundargerð vallaráðs frá 23. september 2013.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með menningar- og íþróttanefnd og fagnar því hversu vel hefur tekist til í sumar með umhirðu íþróttavallanna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.8.Egilsstaðaskóli - fjárhagsáætlun 2014

201309034

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

3.9.Beiðni um styrk vegna Karnivals dýranna

201309151

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 20. september 2013, frá Daníel Arasyni, f.h. Tónlistarskólans á Egilsstöðum með beiðni um styrk vegna flutnings á Karnival dýranna 8. nóvember n.k.

Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu menningar- og íþróttanefndar leggur bæjarstjórn til að verkefnið verði styrkt um kr. 30.000 sem tekið verði af lið 05.89.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.10.Samstarf um uppbyggingu og rekstur skíðasvæðis

201309111

Lagt fram til kynningar.

3.11.Samþykktir fyrir Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs

201309169

Samþykktir fyrir Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs á að endurskoða haustið 2013, eins og fram kemur í þeim.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn að samþykktirnar gildi áfram en verði teknar til endurskoðunar haustið 2014.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.12.Áætlun fagráðs um helstu verkefni MMF ári 2014

201309168

Lagt fram til kynningar.

3.13.Fjárhagsáætlun 2014

201302034

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

3.14.Almenningsbókasöfn - mikilvægur fjársjóður til framtíðar

201309165

Í vinnslu.

3.15.Ormsteiti 2013

201308067

Á fundi menningar- og íþróttanefndar sátu úr stjórn Ormsteitis Jónas Þór Jóhannsson og Halldór Waaren ásamt Guðríði Guðmundsdóttur og gerðu grein fyrir stöðu og framkvæmd verkefnisins í sumar og áformum vegna þess fyrir 2014.
Það er samdóma mat stjórnarmanna að síðasta Ormsteiti hafi gengið vel og aðsókn verið góð. Þátttaka stofnana, félaga og fyrirtækja í sveitarfélaginu hefði þó mátt vera meiri.
Fram kom að Guðríður Guðmundsdóttir, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Ormsteitis síðustu 5 ár, hefur ákveðið að hætta störfum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn þakkar Guðríði Guðmundsdóttur vel unnin störf í þágu hátíðarinnar á undanförnum árum.
Bæjarstjórn tekur undir með menningar- og íþróttanefnd og felur starfsmanni að óska eftir fundi með hagsmunaaðilum um framtíð og framkvæmd hátíðarinnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 50

1309022

Til máls tóku: Páll Sigvaldason, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Einnig ræddi hann sérstaklega lið 5.15. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 5.1, 5.2, 5.9 og 5.13. Páll Sigvaldason, sem ræddi liði 5.1, 5.2, 5.9 og 5.13. Karl Lauritzson, sem ræddi lið 5.13. Sigrún Blöndal, sem ræddi liði 5.15, 5.2 og 5.1. Karl Lauritzson, sem ræddi lið 5.2. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 5.15. Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi liði 5.1 og 5.13. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 5.15 og 5.13 og Páll Sigvaldason, sem ræddi lið 5.15.

Fundargerðin staðfest.

4.1.Starfsáætlun atvinnumálanefndar fyrir 2014

201309073

Í vinnslu.

4.2.Málefni Reiðhallar

201309112

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

Karl Lauritzson, Ragnhildur Rós Indriðadóttir og Árni Kristinsson óskkuðu eftir því að fram kæmi að þau styddu ekki ákvörðun bæjarráðs í málinu.

Stefán Bogi Sveinsson og Gunnar Jónsson lögðu fram eftirfarandi bókun:

Það var að frumkvæði landbúnaðarráðuneytisins sem farið var af stað með það verkefni á sínum tíma að reisa reiðhallir í öllum landshlutum. Að frumkvæði ríkisvaldsins var leitað til hestamannafélaga um samstarf um verkefnið og jafnframt var óskað eftir fjármunum frá viðkomandi sveitarfélögum. Fljótlega breyttust þó forsendur verkefnisins, höllunum fjölgaði og fjármagn til hverrar og einnar minnkaði sem því nam. Því má ljóst vera að ákveðinn forsendubrestur varð í verkefninu strax í upphafi. Þrátt fyrir það risu reiðhallir hringinn í kringum landið. Það er nánast hægt að fullyrða að ekkert þessara verkefna hefur farið eins og lagt var upp með í byrjun og hér um bil allsstaðar hafa sveitarfélög mátt koma inn í verkefnið á mismunandi stigum til þess að taka við boltanum. Reiðhöllin á Iðavöllum er aðeins síðasta dæmið af mörgum um þetta.

Halda má fram með nokkrum rökum að ógæfa verkefnisins hafi verið ónógur stuðningur ríkisvaldsins þegar á reyndi og síðan misráðnar ákvarðanir eða skortur á ákvörðunum af hálfu stjórnenda sveitarfélagsins í gegnum tíðina þegar kemur að málefnum hestamanna. Við hinu síðara verður ekki gert úr þessu en vonandi tekst að rétta hlut verkefnisins gagnvart ríkinu þótt seint sé.

Undanfarin ár hefur verið háð varnarbarátta í fjármálum sveitarfélagsins. Hefur hún einkennst af því að reynt hefur verið að standa vörð um þá þjónustu sem þegar er til staðar og bregðast við þeim bráðasta vanda sem upp hefur komið hvað varðar fjárfestingu og framkvæmdir.

Sú ákvörðun sem tekin var um að Fasteignafélag Fljótsdalshéraðs keypti reiðhöllina á Iðavöllum teljum við vera í fullu samræmi við framangreind sjónarmið um að leitast við að verja þá þjónustu og aðstöðu sem í boði er í sveitarfélaginu. Ekki er hægt að ímynda sér að um mikið bráðari vanda geti verið að ræða varðandi aðstöðu og þjónustu við íbúa heldur en stóð fyrir dyrum í vikunni varðandi reiðhöllina.

Ítreka ber að ennþá er að því stefnt að tekjur af rekstri hallarinnar standi undir kostnaði við fjármögnun og rekstur hennar. Þetta er krefjandi verkefni sem framundan er og kallar á ríka samstöðu hestamanna, ræktenda, ferðaþjónustuaðila og annarra sem komið geta að nýtingu hallarinnar.

4.3.Samþykkt um alifuglahald innan þéttbýlis á Fljótsdalshéraði

201308104

Í vinnslu.

4.4.Nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu

201309143

Lagt fram erindi frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, dagsett 20. september 2013 með ósk um tilnefningu til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að tilnefna Austurbrú til umræddra nýsköpunarverðlauna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.5.Tillaga til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum

201309138

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn vísar til bókunar bæjarráðs frá 14. desember 2011, sem gerð var í tilefni af tillögum frá starfshópi sjávarútvegsráðherra um auðlindarentu. Í þeirri bókun segir meðal annars:

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs tekur undir það meginsjónarmið að auðlindarenta renni til nærsamfélagsins þar sem auðlindir er að finna. Þannig renni veiðigjald til sjávarbyggða þar sem verðmætasköpunin á sér stað, á sama hátt og bæjarráð telur eðlilegt að auðlindagjöld t.d. í tengslum við virkjanir renni til þeirra sveitarfélaga þar sem orkan er tekin.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.6.Fjárlaganefnd Alþingis/ Viðtalstími um fjármál sveitarfélaga

201309167

Lagt fram bréf frá Vigdísi Hauksdóttur, formanni fjárlaganefndar Alþingis, dagsett 26. september 2013, þar sem fulltrúum sveitarfélaga og/eða landshlutasamtaka þeirra er boðið til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarps 2014. Hvatt er til þess að sveitarfélög nýti sér fjarfundafyrirkomulag í því sambandi.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs felur bæjarstjórn bæjarstjóra að kanna hvort grundvöllur sé fyrir sameiginlegum fundi sveitarfélaganna Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarbæjar, Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps með fjárlaganefnd Alþingis, líkt og gert var árið 2012.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.7.Skólaakstur - skipulag o.fl.

201211104

Í vinnslu.

4.8.Fundargerð Dvalar- og hjúkrunarheimilis aldraðra 7.október 2013

201310016

Í vinnslu.

4.9.35. fundur Brunavarna á Austurlandi

201310001

Lögð fram til kynningar.

4.10.Fundargerð 156. fundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

201309171

Lögð fram til kynningar.

4.11.Jafnréttisþing 2013

201310009

Vísað til félagsmálanefndar.

4.12.Meet the locals, þátttaka í verkefni

201309159

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

4.13.Tjaldsvæðið á Egilsstöðum, framkvæmdir og þjónusta á tjaldsvæðinu

201301022

Í vinnslu.

4.14.Skapandi greinar á Héraði

201310017

Í vinnslu.

4.15.Ferðamálaþing 2013

201309170

Lagt fram til kynningar.

4.16.Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs - 93

1309024

Fundargerðin staðfest.

4.17.Langtíma fjárfestingaráætlun

201306083

Í vinnslu.

4.18.Fjárhagsáætlun 2014

201302034

Í vinnslu.

4.19.Fjármál 2013

201301002

Í vinnslu.

4.20.Skólabrún deiliskipulag

201309047

Áherslur við gerð deiliskipulags fyrir götuna Skólabrún, Fellabæ.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að deiliskipulagið verði nokkuð opið, nýtingarhlutfall 0,2 til 0,4. Þakgerð húsanna verði mænisþök.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 191

1310006

Fundargerðin staðfest.

5.1.Finnsstaðasel, heimreið

201310042

Í vinnslu.

5.2.Framlagning deiliskipulagstillögu og kynning byggingaráforma

201310027

Erindi dagsett 8.10. 2013 þar sem Þórhallur Pálsson kt.160152-3899, fyrir hönd Vaðals ehf. og Aðalsteins Jónssonar, leggur fram deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustuna að Skjöldólfsstöðum á Jökuldal ásamt lýsingu á verkefninu.
Jafnframt eru lögð fram byggingaráform gistiheimilisins til kynningar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna fyrir almenningi samkvæmt 40. gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.3.Einbúablá 34, lóðarfrágangur

201310030

Í vinnslu.

5.4.Beiðni um lykiltölur úr aðalskipulagi.

201307005

Lagt fram til kynningar.

5.5.Jökuldalsvegur(923)um Hrafnkelsdal

201304074

Lagt fram til kynningar.

5.6.Erindi um breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs

201309137

Erindi innfært 23.9.2013 þar sem Þórhallur Pálsson kt. 160152-3899 fyrir hönd eigenda jarðarinnar Egilsstaða 2, óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess að breyta landnotkun við Norðurkoll í Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs þannig að þar verði gert ráð fyrir íbúðarbyggð. Fyrir liggur staðsetning á fyrirhuguðu svæði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að vísa málinu til endurskoðunar aðalskipulags 2008 - 2028, en ákvörðun um slíka endurskoðun skal taka í upphafi nýs kjörtímabils sveitarstjórnar.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 aktvæðum en 1 var fjarverandi (GJ)

5.7.Umsókn um stofnun fasteignar

201309150

Erindi dagsett 28.9.2013 þar sem Halldór Vilhjálmsson kt.090933-3459 óskar eftir stofnun fasteignar í fasteignaskrá skv. 14. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna, samkvæmt meðfylgjandi lóðarblaði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Þar sem framlagt lóðarblað er ekki rétt að mati skipulags- og mannvirkjanefndar þá hafnar bæjarstjórn erindi umsækjanda. Bæjarstjórn samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að stofna lóðina í Þjóðskrá, þegar leiðrétt lóðarblað liggur fyrir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 242

1309023

Til máls tóku: Gunnar Jónsson sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Karl Lauritzson, sem ræddi lið 1.18. og bar fram fyrirspurnir. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 1.18. og lagði fram bókun. Gunnar Jónsson, sem ræddi lið 1.18. Árni Kristinsson, sem ræddi lið 1.18. Ragnhildur Rós Indriðsdóttir,sem ræddi lið 1.18. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 1.18. Árni Kristinsson, sem ræddi lið 1.18. Páll Sigvaldason, sem ræddi lið 1.18. Eyrún Arnardóttir, sem ræddi lið 1.18. Karl Lauritzson, sem ræddi lið 1.18. Gunnar Jónsson, sem ræddi lið 1.18. Ragnhildur Rós Indriðadóttir, sem ræddi lið 1.18.og Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 1.18.

Fundargerðin staðfest.


6.1.Starfshópur um stjórnfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs

201301248

Lagt fram til kynningar.

6.2.Skipulags- og mannvirkjanefnd fjárhagsáætlun 2014

201309139

Í vinnslu.

6.3.Aðalfundur Húsfélagsins Hléskógum 2-6

201310020

Lagt fram til kynningar.

6.4.Umsókn um byggingarleyfi/breytingar

201304029

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

6.5.Umsókn um byggingarleyfi

201309145

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

6.6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 124

1309021

Fundargerðin staðfest.

7.Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs - 103

1310003

Til máls tóku: Sigvaldi Ragnarsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Gunnar Jónsson, sem vakti athygli á vanhæfi sínu vegna liðar 2.9. og úrskurðaði forseti hann vanhæfan. Einnig ræddi hann lið 2.10 og Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 2.10.

Fundargerðin staðfest.

7.1.Landsbyggðin lifi/styrkbeiðni

201310018

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

Fundi slitið - kl. 19:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?