Fara í efni

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

398. fundur 18. september 2017 kl. 08:00 - 09:10 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Stefán Bogi Sveinsson aðalmaður
  • Sigrún Blöndal varaformaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Helga Guðmundsdóttir fræðslustjóri
Bæjarráð mun fara til fundar með bæjarráði Fjarðabyggðar kl. 10:30 á Reyðarfirði.

1.Fjármál 2017

201701003

Farið yfir hugmyndir Jarðasjóðs varðandi ráðstöfun ríkisjarða.

Farið yfir ritkun prókúru sveitarfélagsins og formlega afgreiðslu slíkra mála, sbr. 49. gr. samþykkta Fljótsdalshéraðs. Málið verður tekið til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs.

2.Fjárhagsáætlun 2018

201702139

Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri greindi frá undirbúningi að gerð fjárhagsáætlunar Fjótsdalshéraðs 2018.

Fram kom að gert er ráð fyrir að starfsáætlun nefnda fylgi fjárhagsáætlun þeirra 2018.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Innkaupareglur Fljótsdalshéraðs

201709051

Ræddar innkaupareglur Fjótsdalshéraðs og nýtt regluverk í kringum opinber innkaup sveitarfélaga.

Einnig lagt fram bréf frá Ríkiskaupum um aðild að rammasamningi og drög að nýjum samningi þar um. Bæjarráð samþykkir að gengið verði að nýjum samningi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2017

201709040

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Heilbrigðiseftirliti Austurlands 2017 verður Árni Kristinsson, varamaður hans verður Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Þátttaka í Útsvari veturinn 2017 - 2018

201708085

Stefán Bogi Sveinsson greindi frá vinnu við leit að keppendum fyrir Fljótsdalshérað í Útsvari veturinn 2017-2018. Stefáni falið að ljúka þeirri vinnu í samræmi við umræðu á fundinum.

6.Ársskýrsla Persónuverndar 2016

201709056

Ársskýrsla Persónuverndar 2016 lögð fram til kynningar.

Bæjarstjóra falið að undirbúa viðbrögð sveitarfélagsins á sviði breyttrar löggjöf á sviði persónuverndar.

Smþykkt samhljóða handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 09:10.

Getum við bætt efni þessarar síðu?