Fara í efni

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

382. fundur 10. apríl 2017 kl. 09:00 - 11:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Stefán Bogi Sveinsson aðalmaður
  • Sigrún Blöndal varaformaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Fjármál 2017

201701003

Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir ýmis mál tengd rekstri og fjármálum sveitarfélagsins.

Björn bæjarstóri ræddi samskipti við kaupanda Hallormsstaðaskóla,vegna breyttra aðstæðna í rekstri Skógarorku og fór yfir málin. Honum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

2.Fundargerð 848. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

201704009

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2017

201702005

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4.Fundargerðir stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2017

201701027

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Ársfundur Stapa lífeyrirssjóðs 2017

201704013

Lagt fram fundarboð vegna ársfundar Stapa lífeyrissjóðs, sem boðaður er í Skjólbrekku Mývatnssveit miðvikudaginn 3. maí kl. 13:00. Fljótsdalshéraði, sem er meðal 40 stærstu launagreiðenda á svæðinu, er boðið að senda fulltrúa á fundinn.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna fjármálastjóra sem fulltrúa Fljótsdalshéraðs á fundinum.

6.Ábúð á ríkisjörðum

201704027

Lagt fram bréf frá ábúendum á Unaósi, varðandi áframhaldandi ábúð á jörðinni og drátt á því að hún sé auglýst laus til ábúðar.

Í framhaldinu ræddi bæjarráð ábúð á ríkisjörðum í sveitarfélaginu og tregðu ríkisvaldsins til að auglýsa aftur jarðir til ábúðar sem sagt hefur verið lausum.
Bæjarráð tekur heilshugar undir með bréfriturum og ítrekar fyrri afstöðu sína í málefnum ríkisjarða sem birtist meðal annars í bókun bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 15. júní 2016 og var svohljóðandi:

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs beinir því til ríkisvaldsins að leita allra leiða til þess að ríkisjarðir séu setnar og tryggja að samfella sé í búrekstri þeirra jarða sem hafa verið í nýtingu.
Í ljósi stöðu dreifbýlis Fljótsdalshéraðs er það sveitarfélaginu sérstaklega mikilvægt að þessar kostajarðir séu setnar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
Kl. 11:00 kom Ásta Sigfúsdóttir til fundar við bæjarráð og kynnti hugmyndir sínar að umhverfi og ásýnd.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?