Fara í efni

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

350. fundur 08. ágúst 2016 kl. 09:00 - 11:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Blöndal varaformaður
  • Páll Sigvaldason 2. varamaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.

1.1.Umsókn um lóð/Hamrar 2

201607044

Lögð er fram umsókn um byggingarlóð, Hamrar 2 til byggingar einbýlishúss, umsækjandi er Strandatindur ehf. kt. 640306-0170.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

2.Húsafriðunarsjóður 2016/umsókn um styrk

201607001

Bæjarráð samþykkir að send verði inn umsókn til Minjastofnunar um styrk til skoðunar og mats á tillögum um verndarsvæði í byggð á Fljótsdalshéraði og felur atvinnu- menningar og íþróttafulltrúa framkvæmd málsins.

3.Umhverfisviðurkenningar

201606109

Bæjarstjóri kynnti vinnu dómnefnda vegna fyrirhugaðra umhverfisviðurkenninga, sbr. fyrri ákvörðun bæjarráðs um málið. Viðurkenningarnar verða veittar við setningarathöfn Ormsteitis 10. ágúst.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að annast afhendingu viðurkenninganna, í samræmi við niðurstöður dómnefnda.

4.Nýlegar ályktanir EES EFTA sveitarstjórnarvettvangsins

201608014

Lagt fram til kynningar.

5.Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir

201608006

Lagt fram bréf frá Íbúðalánasjóði, dagsett 13. júlí 2016 varðandi framkvæmd nýrra laga un almennar íbúðir.

Bæjarráð samþykkir að láta senda út auglýsingu og kanna hvort einhverjir lögaðilar hafa áhuga á því að fara af stað með byggingu íbúða sem falla undir umrædd lög og reglur.

6.Samningur og viljayfirlýsing Fljótsdalshéraðs og Íþróttafélagsins Hattar varðandi uppbyggingu við Íþ

201508023

Farið yfir stöðuna, en málið að öðru leyti í vinnslu.

7.Skipan fulltrúa í svæðisskipulagsnefnd.

201607027

Lagt fram til kynningar.

7.1.Styrkvegir 2016

201601174

Borist hefur úthlutun Vegagerðarinnar til styrkvega í Fljótsdalshéraði 2016. Samþykkt hefur verið að úthluta sveitarfélaginu 1.200.000,-kr. Styrkurinn verður greiddur eftir að fulltrúar styrkþega og Vegagerðarinnar hafa tekið út framkvæmdir og undirritað þar til gert eyðublað.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð telur að auka þurfi verulega fjárveitingar til styrkvega, svo að hægt sé að sinna lágmarks viðhaldi þeirra og að þeir séu akfærir og nýtist sem slíkir.

7.2.Umsókn um stofnun á nýrri landareign í fasteignaskrá/Hamragerði 2.

201607040

Lagt er fram erindi Hlyns Sigurbjörnssonar, kt.190660-4869, Umsókn um stofnun nýrra landeigna í fasteignaskrá. Ný landeign verði tekin úr Hamragerði, landnr.158094 og beri heitið Hamragerði II.
Meðfylgjandi er umsókn, samþykki meðeiganda, hnit, gps skrá og yfirlitsmyndir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að stofna lóðina í þjóðskrá.

8.Fjármál 2016

201601001

Björn Ingimarsson bæjarstjóri fór yfir upplýsingar frá fjármálastjóra, varðandi rekstur sveitarfélagsins síðustu mánuði.

8.1.Umsókn um byggingarleyfi

201604058

Lagt var fram erindi Margrétar Láru Þórarinsdóttur dags. 11.4.2016 á 46. fund umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 27.4.2016 þar sem umsækjandi óskaði eftir byggingarleyfi fyrir breytingum Selás 23.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkti að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að setja málið í grenndarkynningu skv.44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr.5.9.1 Skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.

Bréf var sent hluteigandi dags. 7.6. 2016, frestur til að gera athugasemdir við framlagða tillögu var til klukkan 15:00, föstudaginn 8. júlí 2016.

Athugasemdir bárust.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð er sammála umhverfis- og framkvæmdanefnd, tekur undir hluta af þeim athugasemdum sem bárust og hafnar erindinu.

8.2.Tjarnarland urðunarstaður 2016

201604184

Lagt fram til kynningar.

8.3.Stæði fyrir stóra bíla í þéttbýli

201606114

Umhverfis- og framkvæmdanefnd tók til athugunar erindi um stæði fyrir stóra bíla í þéttbýli á 50.fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 22.6.2016.
Samþykkti nefndin að fela starfsmanni að gera tillögu að staðsetningu bílastæðis og leggja fyrir fund.

Lagðar eru fram 6 tillögur að staðsetningum stæða fyrir stóra bíla í þéttbýli.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og leggur til að stæðið í tillögu 1 verði stækkað í samræmi við tillöguna.
Framkvæmdin verði sett á verkefnislista 2017.
Starfsmanni er falið að opna og merkja þann hluta svæðisins sem tilbúinn er til notkunar nú þegar.

8.4.Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla

201606141

Í vinnslu.

8.5.Beiðni um þátttöku í uppsetningu skilta við Vallanes

201606112

Lagt er fram erindi Eymundar Magnússonar f.h. Móðir Jörð ehf. dags. 17.6. 2016 þar sem undirritaður óskar eftir aðkomu Fljótsdalshéraðs að gerð og uppsetningu skilta á og við afleggjarann að félagsheimilinu Iðavöllum, félagssvæði og reiðhöll Freyfaxa, Vallaneskirkju, Vallanesi og Jaðri. Meðfylgjandi er tilboð í gerð skiltanna og erindi umsækjanda.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð að taka þátt í kostnaði við yfirlitsskilti, 120x100sm og gert verði ráð fyrir því í fjárhagsáætlun 2017. Bæjarráð setur sig ekki upp á móti staðsetningu skiltanna en áréttar að uppsetningin skal vera í fullu samráði við Vegagerð ríkisins. Jafnframt verði kannað með aðkomu Vegagerðarinnar að framkvæmdinni.

8.6.Gangnaboð og gangnaseðlar 2016

201607039

Afgreiðsla nefndarinnar staðfest.

8.7.78.fundargerð svæðisráðs austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.

201607011

Í vinnslu.

9.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 52

1607007

Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?