Fara í efni

Atvinnu- og menningarnefnd

88. fundur 27. maí 2019 kl. 17:00 - 17:50 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir formaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Sigrún Blöndal aðalmaður
  • Óðinn Gunnar Óðinsson
  • Benedikt V. Warén áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir því að tvö ný mál yrðu tekin á dagskrá og eru þau númer 5 og 6.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Hjaltalundur, ástand þaks

201904115

Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna endurnýjunar þaks á félagsheimilinu Hjaltalundi. Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 29. apríl 2019.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur áherslu á að þakið á Hjaltalundi er illa farið og þarfnast viðhalds. Fyrirhuguð er vinna á vegum sveitarfélagsins við s.k. Úthéraðsverkefni, sbr. mál 201809013, þar sem m.a. er gert ráð fyrir að skoða möguleika Hjaltalundar sem t.d. gestastofu með fjölþætta starfsemi.
Nefndin beinir því til umhverfis- og framkvæmdanefndar að gera ráð fyrir fjármunum til viðhalds þaksins í næstu áætlunum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Reglur um listaverk í eigu sveitarfélagsins, valnefnd

201905117

Í vinnslu.

3.Leikhópurinn Lotta, beiðni um styrk

201905119

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 20. maí 2019, frá Leikhópnum Lottu með beiðni um stuðning vegna sýninga hópsins sem haldnar verða á Egilsstöðum í sumar.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að Leikhópurinn Lotta verði styrktur um kr. 50.000.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Sumarfrí atvinnu- og menningarnefndar

201905138

Atvinnu- og menningarnefnd tekur sumarfrí að loknum næsta fundi, sem fyrirhugaður er í 24 viku. Nefndin komi saman að loknu sumarfríi í 35. viku.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2019

201905161

Fyrir liggur fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna ásamt ársreikningi og samþykktum.

Lagt fram til kynningar.

6.Viðurkenning vegna menningarstarfs

201904079

Í vinnslu.

Fundi slitið - kl. 17:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?