Fara í efni

Atvinnu- og menningarnefnd

80. fundur 07. janúar 2019 kl. 17:00 - 19:45 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir formaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Sigrún Blöndal aðalmaður
  • Aron Steinn Halldórsson aðalmaður
  • Óðinn Gunnar Óðinsson
  • Atli Vilhelm Hjartarson varamaður
  • Benedikt V. Warén áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi

1.Menningarstyrkir 2019

201811022

Fyrir liggja umsóknir um styrki til menningarstarfs en umóknarfrestur var til og með 16. desember 2018.

Farið yfir umsóknirnar sem bárust og verður málið tekið fyrir aftur á næsta fundi.

2.17. júní hátíðahöld á Fljótsdalshéraði

201709076

Samningur sveitarfélagsins við Fimleikadeild Hattar um undirbúning, stjórnun og framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna á Fljótsdalshéraði, rann út á síðasta ári.

Atvinnu- og menningarnefnd felur formanni og starfsmanni nefndarinnar að óska eftir viðræðum við fulltrúa fimleikadeildar Hattar um framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna árið 2019.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Framhaldsaðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga

201812035

Fyrir liggur fundargerð framhaldsaðalfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 14. desember 2018.
Jafnframt liggur fyrir fundargerð stjórnar safnsins frá 14. desember 2018.

Jafnframt liggur fyrir bókun bæjarráðs frá 7. janúar 2019, sem beinir því til atvinnu- og menningarnefndar að taka málefni Héraðsskjalasafns Austfirðinga á dagskrá með hliðsjón af nýkominni skýrslu Þjóðskjalasafns um starfsemi héraðsskjalasafna, nýjum verkefnum sem tengjast löggjöf um persónuvernd og mögulegum sérverkefnum Héraðsskjalasafnsins fyrir Fljótsdalshérað.

Atvinnu- og menningarnefnd felur starfsmanni að ræða við forstöðumann Héraðsskjalasafnsins um möguleg sérverkefni og óskar jafnframt eftir að forstöðumaður safnsins mæti á næsta fund nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Ormsteiti til framtíðar

201811080

Atvinnu- og menningarnefnd auglýsti í október síðast liðnum eftir aðila eða aðilum sem áhuga hefðu á að taka að sér framkvæmd og rekstur bæjarhátíðarinnar Ormsteitis 2019 og eða til næstu ár. Frestur til að skila inn tillögum um framkvæmd og rekstur hátíðarinnar var til og með 19. nóvember 2018.
Engin umsókn barst við auglýsingunni.

Jafnframt liggur fyrir tölvupóstur, dagsettur 28. desember 2018, frá Halldóri Waren, þar sem vísað er til fyrrnefndar auglýsingar og lýst er vilja til samráðs og umræðna um framkvæmd bæjarhátíðar.

Atvinnu- og menningarnefnd óskar eftir að Halldór mæti við fyrsta tækifæri á fund nefndarinnar þar sem hann geri grein fyrir hugmyndum sínum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Benedikt Warén vék af fundi undir þessum lið.

5.Beiðni um stuðning við útgáfu þriggja bóka

201901011

Fyrir liggur bréf dagsett 30. desember 2018, frá Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi, þar sem leitað er eftir stuðningi við ljóðabókaútgáfu félagsins á árinu 2019. En þá gefur félagið út þrjár bækur, höfundar tveggja þeirra eru af Fljótsdalshéraði og þýðandi þeirrar þriðju er þar búsettur.

Atvinnu- og menningarnefnd sér sér ekki fært að styrkja útgáfuna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Súpufundir- atvinnu- og menningarnefndar

201812029

Fyrir liggja hugmyndir um málefni til umræðu á opnum fundum á vegum atvinnu- og menningarnefndar sem fyrirhugaðir eru í febrúar og mars.

Starfsmanni falið að vinna málið áfram.

Fundi slitið - kl. 19:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?