Fara í efni

Atvinnu- og menningarnefnd

70. fundur 22. maí 2018 kl. 17:30 - 18:45 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer formaður
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir varaformaður
  • Þórður Mar Þorsteinsson aðalmaður
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir aðalmaður
  • Óðinn Gunnar Óðinsson
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi
Áður en fundurinn hófst voru nefndarmenn viðstaddir undirritun samnings um uppbyggingu menningarhúss á Fljótsdalshéraði, í Safnahúsinu.

1.Fjárhagsáætlun atvinnu- og menningarnefndar fyrir 2019

201803121

Fyrir liggur rammaáætlun fyrir málaflokka atvinnu- og menningarnefndar sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. maí 2018.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur áherslu á eftirfarandi málefni og hvetur næstu nefnd til að huga að þeim:
- Að ráðinn verði starfsmaður sem m.a. gæti sinnt eftirfarandi verkefnum: Markaðssetja sveitarfélagið út á við og vera tengiliður sveitarfélagsins við atvinnulífið á svæðinu, fylgja eftir innviðagreiningu og vinna að ferðaþjónustuverkefnum s.s. Úthéraðsins sbr. greinargerð um málið, og kynna nýtt miðbæjarskipulag.
- Vegna aukinna verkefna verði starfsfólki fjölgað við Héraðsskjalasafnið og Menningarmiðstöðina.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Ormsteiti 2018

201801076

Fyrir liggja drög að samningi við Menningarsamtök Héraðsbúa um Ormsteiti 2018.

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Menningarsamtök Héraðsbúa með áorðnum breytingum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Örnefnaskráning

201804062

Fyrir liggja gögn er varða örnefnaskráningu. En bæjarráð samþykkti á fundi 14. maí 2018 að vísa erindinu, ásamt minnisblaði umhverfisfulltrúa, til atvinnu- og menningarnefndar til frekari skoðunar.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að farið verði í örnefnaskráningu í sveitarfélaginu á kerfisbundinn hátt. Nefndin felur starfsmanni að leita leiða til að hrinda verkefninu af stað. Leitað verði til Félags eldri borgara um mögulega aðkomu að verkefninu sem og bréfritara.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fjölmenningarhátíð, styrkumsókn

201805077

Fyrir liggur styrkumsókn frá Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs vegna Fjölmenningarhátíðar sem haldin er í Sláturhúsinu menningarsetri 21. maí 2018.

Atvinnu og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 50.000 sem tekið verði af lið 0574.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Aðalfundur Minjasafns Austurlands 26. apríl 2018

201805031

Fyrir liggur fundargerð aðalfundar Minjasafns Austurlands sem haldinn var 26. apríl 2018. Einnig liggur fyrir ársskýrsla og ársreikningur safnsins fyrir 2017 sem og Starfsstefna Minjasafnsins fyrir árin 2018-2021.

Atvinnu- og menningarnefnd þakkar greinargóð gögn og hvetur næstu nefnd til að kynna sér starfsstefnu Minjasafnsins. Að öðru leyti lagt fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 26.2. og 23.4. 2018

201805089

Fyrir liggja fundargerðir stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 26. febrúar og 23. apríl 2018. Einnig liggur fyrir fjárhagsáætlun fyrir 2019 og tillaga stjórnar að rekstrarframlögum fyrir 2019.

Atvinnu- og menningarnefnd vekur athygli á því vegna fjárhagsáætlunar stjórnar safnsins, að fjárhagsáætlun nefndarinnar verður ekki endanlega staðfest fyrr en í haust, sbr. þó fyrsta lið þessarar fundargerðar. Að öðru leyti lagt fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2018

201805088

Fyrir liggur fundarboð vegna aðalfundar Landskerfis bókasafna hf. sem haldinn verðu 30. maí í Reykjavík.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að forstöðumaður Bókasafns Héraðsbúa sitji aðalfundinn hafi hún tök á.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Samningur um byggingu menningarhúss

201805134

Fyrir liggur nýundirritaður samningur um byggingu menningarhúss á Fljótsdalshéraði.

Atvinnu- og menningarnefnd fagnar þeim langþráða áfanga sem náðst hefur með undirritun samnings um uppbyggingu menningarhúss. Annars vegar er um að ræða uppbyggingu í Sláturhúsinu og með því að klára byggingu annarrar burstar við Safnahúsið. Samningurinn að öðru leyti lagður fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


Fundi slitið - kl. 18:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?