Fara í efni

Atvinnu- og menningarnefnd

49. fundur 06. mars 2017 kl. 17:00 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer formaður
  • Þórður Mar Þorsteinsson aðalmaður
  • Alda Ósk Harðardóttir aðalmaður
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir aðalmaður
  • Davíð Þór Sigurðarson varamaður
  • Óðinn Gunnar Óðinsson
  • Björn Ingimarsson
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson atvinnu-. menningar- og íþróttafulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að nýtt mál væri tekið á dagskrá fundarins, Gróðrastöðin Barri og var það samþykkt samhljóða.

1.Gróðrarstöðin Barri ehf.

201702096

Á fundi bæjarráðs 6. mars 2017 málinu vísað til atvinnumálanefndar/stjórnar atvinnumálasjóðs til umsagnar og fól jafnframt bæjarstjóra að kynna málið á næsta fundi nefndarinnar.
Bæjarstjóri mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu Barra.

Atvinnu- og menningarnefnd tekur jákvætt í beiðni um hlutafjáraukningu Fljótsdalshéraðs í Gróðrastöðinni Barra ehf, á grundvelli fyrirliggjandi áætlana. Nefndin vekur athygli á því að ef til þess kemur þurfi að leggja til fjármuni í atvinnumálasjóð. Skilyrði fyrir hlutafjáraukningu sveitarfélagsins er að aðrir hluthafar leggi til aukið hlutafé.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Þurrkun og vinnsla á hráefni úr landbúnaði

201702105

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 15. febrúar 2017, frá Þórarni Lárussyni þar sem óskað er eftir málafylgju við hugmyndir um þurrkun og vinnslu á hráefni úr landbúnaði, s.s.heyi, byggi, hálmi og skógvið í húsnæði Haustaks. Á fundinn undir þessum lið mætti Þórarinn Lárusson.
Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 20. febrúar 2017.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að starfsmaður nefndarinnar setji sig í samband við eigendur húsnæðisins og kanni grundvöll fyrir því að fyrirhuguð starfsemi geti orðið í húsnæðinu og á hvaða forsendum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Styrkbeiðni vegna ráðstefnunnar Auður Austurlands

201702111

Fyrir liggur bréf dagsett 19. febrúar 2017, frá Tengslaneti austfirskra kvenna, með beiðni um styrk til að halda ráðstefnuna Auður Austurlands.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 1389.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Sjötíu ára afmæli Egilsstaðakauptúns

201602100

Fyrirkomulag afmælisins til umræðu. Málið í vinnslu.

5.Staða atvinnumála og ýmis verkefni

201112020

Almennar umræður um atvinnu- og kynningarmál.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?