Fara í efni

Rithöfundalest(ur) í Skaftfelli

Skaftfell listamiðstöð Austurlands, Austurvegi 42, Seyðisfirði 23. nóvember 2024 kl. 20:00-22:00
Verið hjartanlega velkomin á Rithöfundalestina sem stoppar í Skaftfelli klukkan 20.00 laugardaginn 23. nóvember.

Árleg ferð Rithöfundalestarinnar um Austurland verður 21. -24. Nóvember. Í ár eru það Jón Knútur Ásmundsson sem kynnir Slög, sína nýjustu ljóðabók, Brynja Hjálmsdóttir með sína fyrstu skáldsögu Friðsemd, Hrafnkell Lárusson með áhugaverða bók, Lýðræði í mótun og Rán Flygenring kynnir barnabækurnar Tjörnin og Álfar.
Í Skaftfelli mun Sigríður Matthíasdóttir einnig kynna bók sína um Pálínu Waage. Kynnir er Pétur Kristjánsson. 

Samkoman fer fram í sýningarsal Skaftfells en velkomið er að koma með drykki upp frá bistróinu. Hægt verður að versla einhverjar bækur á staðnum.

Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, bókaforlagsins Angústúru, bókaforlagi Benedikts, Sögufélagsins, Bílaleigu Akureyrar og Gistihússins á Egilsstöðum.
Allar upplýsingar um viðburðina er að finna á Facebook-síðum samtarfsaðilanna.

Upplestrarsamkomur Rithöfundalestarinnar 2024:
Fimmtudaginn 21 nóv. á Vopnafirði í Kaupvangi kl. 20:00
Föstudaginn 22. nóv. í Tónspili, Neskaupstaði kl. 20
Laugardaginn 23. nóv. í Löngubúð, Djúpavog kl. 14:00 og Skaftfelli, Seyðisfirði kl. 20:00
Sunnudaginn 24.nóv. á Skriðuklaustri kl:13:30 - viðburðinn verðu líka í streymi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?