Fara í efni

Rithöfundalest(ur) í Löngubúð

Langabúð, Djúpavogi 23. nóvember 2024 kl. 14:00-15:00
Rithöfundalestin stoppar í Löngubúð á Djúpavogi laugardaginn 23.nóvember kl. 14:00.

Árleg ferð Rithöfundalestarinnar um Austurland verður 21. -24. nóvember. Með í ferðinni í ár verða þau Jón Knútur Ásmundsson sem kynnir Slög, sína nýjustu ljóðabók, Brynja Hjálmsdóttir með sína fyrstu skáldsögu Friðsemd, Hrafnkell Lárusson með bók sína, Lýðræði í mótun og Rán Flygenring sem kynnir barnabækurnar Tjörnin og Álfar. Á hverjum stoppistað verða fleiri útgáfur tengdar Austurlandi kynntar og mögulega bætast aðrir höfundar í hópinn á hverjum stað.
 
Hægt verður að versla kaffiveitingar hjá Löngubúð á meðan upplesturinn fer fram og bækur verða til sölu á staðnum.
 
Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, bókaforlagsins Angústúru, bókaforlagi Benedikts, Sögufélagsins, Bílaleigu Akureyrar og Gistihússins á Egilsstöðum.
 
Allar upplýsingar um viðburðina er að finna á Facebook-síðum samtarfsaðilanna.
 
Upplestrarsamkomur Rithöfundalestarinnar 2024:
Fimmtudaginn 21 nóv. á Vopnafirði í Kaupvangi kl. 20:00
Föstudaginn 22. nóv. í Tónspili, Neskaupstað kl. 20
Laugardaginn 23. nóv. í Löngubúð, Djúpavogi kl. 14:00 og Skaftfelli, Seyðisfirði kl. 20:00
Sunnudaginn 24.nóv. á Skriðuklaustri kl:13:30 - viðburðinn verðu líka í streymi.
 
Á undan viðburðinum í Löngubúð mun Rán Flygenring bjóða upp á teiknismiðju fyrir alla fjölskylduna, sjá nánar hér.
 
Aðgangur ókeypis - verið öll velkomin
Getum við bætt efni þessarar síðu?
Valmynd