Fara í efni

Íþróttavika Evrópu í Múlaþingi

23. september 2024

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. - 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Markmiðið er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Í samstarfi við ÍSÍ tekur Múlaþing þátt.

Dagskráin er enn í mótun en meðal viðburða er prjónaganga Bókasafnsins Héraðsbúa og Nálarhússins, hlaupaæfing með Austur, kynning á lyftingarnámskeiði í Austur, gönguferðir, frisbígolf og íþróttafélög munu hafa opnar æfingar fyrir áhugasama iðkendur, m.a. í blaki, knattspyrnu og borðtennis. Þá mun vera opinn fyrirlestur á Teams um Betri svefn, frítt í rækt og sund laugardaginn 28 sept. og margt fleira.

Við hvetjum íbúa til þess að kíkja á dagskrána og taka þátt í viðburðum sem í boði verða. Fylgist með á mulathing.is og á facebook.

Frekari upplýsingar veitir Dagný Erla, verkefnastjóri íþrótta- og æskulýðsmála á dagny.erla.omarsdottir@mulathing.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?