Fara í efni

Far out / Langt út - Andrés Þór tríó

Sláturhúsið 28. september 2023 kl. 20:00

Tríó Andrésar Þórs er skipað þeim Andrési Þór sem leikur á gítar, Þorgrími Jónssyni sem leikur á kontrabassa og Scott McLemore trommuleikara. Þeir félagar hafa starfað lengi saman í ýmsum hljómsveitum, þeir léku til að mynda saman á plötu Andrésar Mónókróm sem kom út árið 2012 og hlaut mikið lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna það ár. Þeir Andrés og Scott eru einnig meðlimir í ASA Tríó ásamt Agnari Magnússyni orgelleikara en þess má geta að sú hljómsveit hlaut Íslensku tónlistarveðlaunin 2022 fyrir plötuna Another Time sem þeir gerðu í samstarfi við saxófónleikarann Jóel Pálsson. Scott og Þorgrímur eru einnig meðlimir í Tríói píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs og hafa leikið víðsvegar um Evrópu og í Bandaríkjunum með því triói auk þess að vera eftirsóttir meðleikarar með mörgum af okkar helsta tónlistarfólki.
Í fyrra kom út platan Hereby með tríói Andrésar hjá norsku plötuútgáfunni Losen Records. Sú plata hefur hlotið mikið lof og töluverða spilun á streymisveitum. Á tónleikunum munu þeir félagar leika tónlist af plötunni Hereby í bland við vel valda jazzstandarda.

Getum við bætt efni þessarar síðu?