Múlaþing auglýsir til sölu Kubota L245DT, árgerð 1982. Vélin er keyrð 1919 tíma og er til sýnis við áhaldahúsið á Egilsstöðum.
Frekari upplýsingar um vélina veitir Kári Ólason í síma 864-4979.
Tilboðum skal skilað rafrænt á netfangið mulathing@mulathing.is merkt „Tilboð í Kubota“ eigi síðar en kl. 10:00 þann 8. nóvember 2021.
Múlaþing áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.