Vinnuskóli Múlaþings verður starfræktur frá 10. júní til 15. ágúst í sumar og er hann opinn ungmennum sveitarfélagsins sem eru fædd á árunum 2008 til 2011, eða þeim sem eru að ljúka 7. til 10. bekk í vor. Starfsstöðvar vinnuskólans verða fjórar: á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.
Vinnutími nemenda verða sem hér segir. Nemendur fæddir:
- 13 ára (árg. 2011) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klst. á dag.
- 14 ára (árg. 2010) hafa kost á vinnu í 7 vikur, 3 klst. á dag.
- 15 ára (árg. 2009) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag.
- 16 ára (árg. 2008) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag.
Laun verða lögð inn á bankareikning sem skal vera skráður á kennitölu nemanda og verða útborgunardagar í mánaðarlok. Forsjáraðilar nemanda sem óska eftir vinnu í Vinnuskólanum er bent á að sækja um fyrir þeirra hönd.
Nemendur fæddir árið 2010 geta skráð sig í Sjávarútvegsskólann.
Nemendur fæddir árin 2008 og 2009 geta óskað eftir að aðstoða við sumarfrístund en hún stendur nemendum 1. – 3. bekkjar til boða og er lögð áhersla á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem gert er í sumarfrístund eru leikir, smíðavöllur, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir og fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2024. Berist umsókn eftir það er ekki öruggt að nemandi fái inn í skólann.
Sótt er um í Vinnuskólann í gegnum Mínar síður sem má nálgast hér.
Nánari upplýsingar um Vinnuskólann má nálgast hér.