Á síðasta fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 18. desember var framkvæmda- og umhverfismálastjóra falið að láta kynna reglur um vetrarþjónustu á miðlum Múlaþings. Ráðið hvatti íbúa og aðra til þess að koma ábendingum um það sem má betur fara varðandi vetrarþjónustu á framfæri á netfangið mulathing@mulathing.is. Að gefnu tilefni þótti viðeigandi að minna á að kurteisi og vinsemd er mikilvæg í öllum samskiptum, bæði á samfélagsmiðlum og í samskiptum við starfsmenn sveitarfélagsins.
Vetrarþjónusta miðar að því að halda opnum helstu stofn- og tengibrautum, aksturleiðum skólabíla og almenningssamgangna og tryggja aðgengi að neyðarþjónustu eins og kostur er. Reynt er að lágmarka umferð snjómoksturstækja við skólastofnanir á helstu ferðatímum barna til og frá skóla.Verkstjórar þjónustumiðstöðva Múlaþings halda utan um vetrarþjónustu hver í sínum byggðakjarna en yfirumsjón hefur framkvæmda- og umhverfismálastjóri. Starfsmenn þjónustumiðstöðva sinna vetrarþjónustu en jafnframt er leitað til verktaka á hverjum stað og leitast við að semja við aðila í nærsamfélaginu til að spara vegalengdir og tíma.
Sveitarfélagið annast ekki snjóhreinsun:
- á bílastæðum eða plönum einstaklinga og fyrirtækja.
- frá sorpílátum og bílskúrum einstaklinga og fyrirtækja.
- á einkavegum að húsnæði sem skilgreint er sem sumarhús í fasteignaskrá Þjóðskrár.
- á einkavegum í og að sumarhúsahverfum.
- þar sem einstaklingur er skráður með lögheimili en hefur ekki fasta búsetu allt árið á staðnum.
- að einstökum ferðamannastöðum.
- á hlöðum eða plönum við útihús í dreifbýli.
Hægt er að lesa um viðmiðunarreglur um vetrarþjónustu í Múlaþingi hér: Viðmiðunarreglur um vetrarþjónustu í Múlaþingi | Múlaþing (mulathing.is).