Baugur Bjólfs, útsýnissvæði við Seyðisfjörð er hringlaga útsýnispallur sem situr á Bæjarbrún. Þar verður einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð — frá mynni fjarðarins, yfir bæinn, fjallahringinn og suðvestur inn í dalinn. Að ofanverðu gnæfa tindar Bjólfs yfir.
Helstu verkþættir eru:
- Jarðvinna og yfirborðsfrágangur vegna mannvirkis og á aðkomusvæði
- Uppsteypa mannvirkis með eftirspennu
- Handrið úr stáli og lerki ásamt lerkihandlistum
Hægt er að óska eftir rafrænum útboðsgögnum á netfangið utbod@mulathing.is frá og með 5.september 2023.
Tilboðið skal sett fram á meðfylgjandi tilboðsblöðum, dagsett og undirritað af bjóðanda. Skila skal tilboðum og öllum fylgigögnum í einu eintaki, í lokuðu umslagi eða í tölvupósti, utbod@mulathing.is, merktu:
Múlaþing
- Baugur Bjólfs, útsýnissvæði við Seyðisfjörð – Útboð 202306059
- Fullnaðarfrágangur á útsýnispalli, landmótun, aðkoma og bílastæði
- Tilboð
- Nafn bjóðanda
Tilboð berist eigi síðar en kl. 14:00 þann 3. október 2023 þar sem tilboðin verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska, að Lyngási 12 á Egilsstöðum.