Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæði norðan Dyrfjalla og náttúruvættið Stórurð hefur verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar. Svæðið var friðlýst 2. júlí 2021.
Áætlunin er unnin af fulltrúum umhverfisstofnunar, fulltrúum landeigenda og fulltrúum Múlaþings. Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára. Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. grein laga númer 60/2013 um náttúruvernd.
Hægt er að gera athugasemdir við drögin að áætluninni. Skilafrestur athugasemda er til og með 17. mars 2024. Á þessari vefsíðu má finna drög að áætluninni og senda athugasemdir.