Fara í efni

Tilkynning frá HEF veitum vegna vatnsveitu á Borgarfirði

30.08.2024 Tilkynningar Borgarfjörður

Enn mælist mengun í vatnsveitu á Borgarfirði. Áfram er mælst til þess að notendur sjóði drykkjarvatn. Óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa svo sem til baða, þvotta og matargerðar svo sem til skolunar á matvælum, sem munu síðar vera elduð. Næstu sýni verða tekin eftir helgina.
Hér má finna leiðbeiningar um suðu á neysluvatni

Tilkynning frá HEF veitum vegna vatnsveitu á Borgarfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?