Fara í efni

Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi, covid-19

10.11.2021 Fréttir Covid - 19

Á Vopnafirði bættist við eitt nýtt smit eftir sýnatöku gærdagsins svo nú eru alls 9 í einangrun á Vopnafirði. Töluverður fjöldi er í sóttkví og smitgát. Aftur verður boðið upp á sýnatöku á Vopnafirði í dag á milli 17-18 og eru íbúar hvattir til að mæta í skimun. Í samráði við aðgerðastjórn Austurlands var ákveðið að hafa grunnskóla og leikskóla lokaða á morgun á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku dagsins. Ekki hafa bæst við nein ný smit á Egilsstöðum en opið var í sýnatöku í hádeginu og niðurstöður ættu að liggja fyrir í kvöld.

 

Önnur tilkynning verður send út um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.

Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi, covid-19
Getum við bætt efni þessarar síðu?