Fara í efni

Sumarlestur á Bókasafni Héraðsbúa - Lestraráskorun og ofurhetjuspil

11.06.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Í sumar hvetjum við öll til að setja á sig ofurhetjuskikkjuna og taka þátt í Sumarlestri almenningsbókasafnanna. Lestur veitir ofurkraft, því meira sem þú lest, því meira lærir þú og skilur.
Á Bókasafni Héraðsbúa eða á öðrum völdum almenningsbókasöfnum færðu sumarlestursheftið. Það inniheldur sex lestraráskoranir og skemmtilegt ofurhetjuspil. Lestrarákorunin er að ná að lesa samanlagt í ákveðinn fjölda mínútna sem lestrarhetjan setur sér í samráði við foreldri eða annan fullorðinn. Hvað ætlar þú að lesa margar mínútur á einni viku? Í hvert sinn sem áskorun lýkur kvittar foreldri/forráðamaður og lestrarhetjan heimsækir bókasafnið með staðfestinguna til þess að fá límmiða til að líma á spilaborðið.

Allir sem safna límmiðum geta fyllt út happdrættismiða og við drögum út fimm sinnum í sumar, 20. júní, 4. júlí, 18. júlí, 1. ágúst og 15. ágúst.

Lestrarhetjan til bjargar í Skarkalabæ.

Spilaborðið er mynd af Skarkalabæ. Í Skarkalabæ er allt í rugli! Það þarf að bjarga fólki og furðuverum úr bráðri hættu og það strax! Þú getur verið lestrarhetjan sem bjargar deginum með aðal ofurkraftinum, orðaforðanum! Spilið er samvinnuspil þar sem spilarar hjálpast að við að bjarga fólki og furðuverum í vanda. Spilarar skiptast á að vera hetjan á meðan hinir giska á hverjum/hverju lestrarhetjan ætlar að bjarga á myndinni.

Með hverjum límmiða sjáum við enn betur hvað það er sem er í gangi í Skarkalabæ. Þannig stækkar spilið með hverri lestraráskorun sem lestrarhetjan klárar í sumar. Myndirnar eru eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og borðspilið er hannað af Steingerði Lóu Gunnarsdóttur. Hugmyndavinnan er unnin í samstarfi við vinnuhóp sem er skipaður af barnabókavörðum á almenningsbókasöfnum um allt land og er efnið gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Uppskeruhátíð sumarlestursins

Við fögnum frábærum árangri með uppskeruhátíð á Bókasafni Héraðsbúa í haust sem verður nánar auglýst síðar.

Gleðilegt ofurlestrar-sumar!

Sumarlestur á Bókasafni Héraðsbúa - Lestraráskorun og ofurhetjuspil
Getum við bætt efni þessarar síðu?