Fara í efni

Strætó fyrir íbúa vegna Flugs og fáka

26.07.2024 Fréttir

Sunnudaginn 28. júlí mun Múlaþing bjóða gestum og gangandi upp á að nýta sér strætó á flughátíðina Flug&Fákar sem haldin verður á Egilsstaðaflugvelli.
Strætó mun fara sinn venjulega hring frá Fellabæ klukkan 11:30 og endar á Egilsstaðaflugvelli. Strætó mun svo fara til baka frá flugvellinum klukkan 16:00.

Íbúar eru hvattir til að gera sér glaðan dag og kíkja á þessa einstöku hátíð. 

Strætó fyrir íbúa vegna Flugs og fáka
Getum við bætt efni þessarar síðu?