Fara í efni

Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi

18.06.2024 Fréttir Egilsstaðir

Skógardagurinn mikli verður haldinn laugardaginn 22. júní en 20 ár eru síðan viðburðurinn var haldinn í fyrsta sinn. Dagskráin er vegleg að vanda en leikar hefjast með upphitun fyrir Skógardaginn föstudaginn 21. júní klukkan 17:30. Á laugardeginum hefst dagskráin með Skógarhöggskeppni klukkan 12:00.

Íbúar eru hvattir til að fjölmenna, taka þátt í líflegri dagskrá og smakka á gómsætum veitingum og heilgrilluðu nauti.

 

Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi
Getum við bætt efni þessarar síðu?