Fara í efni

Pínulitla gula hænan - í Múlaþingi

24.06.2021 Fréttir

Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn í Múlaþing dagana 21.-24.júlí með ævintýralegt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.

Það verður aðeins annar bragur á Lottu í sumar en sökum Covid gátu þau ekki búið til glænýjan íslenskan söngleik í fullri lengd líkt og vanalega, þau hafa þó ekki setið auðum höndum og koma nú til okkar með frábæra söngvasyrpu stútfulla af sprelli og fjöri fyrir unga sem aldna.

Í sumar ferðast Leikhópurinn Lotta um landið með skemmtilegt atriði unnið uppúr Litlu gulu hænunni sem þau sýndu árið 2015. Fjórir þekktir Lottu leikarar mæta á svæðið með frábært 25 mínútna skemmtiatriði prýtt fallegum boðskap, frábærum húmor að hætti Lottu og góðum lögum.

Sjáumst vonandi sem flest á Pínulitlu gulu hænunni!

Djúpivogur, 21. júlí klukkan 17.30 á fótboltavellinum.
Seyðisfjörður, 22. júlí klukkan 17.30 á túninu við kirkjuna.
Egilsstaðir, 23. júlí klukkan 15 og 17.30 í Tjarnargarði.
Borgarfjörður, 24. júlí klukkan 11 á fótboltavellinum.

 

Sýningin er í boði Múlaþings og geta áhorfendur því notið sér að kostnaðarlausu.

 

Pínulitla gula hænan - í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?