Opnað hefur verið fyrir umsóknir um íbúðir á vegum leigufélagsins Bríet að Vallargötu 2, Seyðisfirði tekið er við umsóknum til og með 3. október n.k.
Nánari upplýsingar og hlekkur á umsóknir er undir hverri íbúð á slóðinni: https://briet.is/lausar-ibudir/
Til að umsókn geti talist gild þarf umsækjandi að skila inn öllum skrám sem kallað er eftir (sama gildir um meðleigjanda, ef 2 aðilar eru skráðir fyrir umsókn):
- Skattframtal 2022 (pdf)
- Staðgreiðsluyfirlit fyrir árin 2022 og 2023 (pdf)
- Lánshæfismat (pdf)
- Skuldastöðuyfirlit (pdf)
- Rökstuðningur
Bent er á að gæludýrahald er ekki leyft í þessum eignum.
Öllum umsóknum verður svarað eftir úrvinnslu.