Fara í efni

Moltan er komin á Seyðisfjörð

05.06.2024 Fréttir Seyðisfjörður

Garðeigendur í Múlaþingi geta sótt moltu til að bæta jarðveginn í görðum sínum, sér að kostnaðarlausu. Á Seyðisfirði er molta í norðanverðum firðinum við Vestdalseyrarveg 2.

Molta er áburður frekar en jarðvegur og ætti því að blanda henni saman við mold eða sand, líkt og gert er með húsdýraáburð. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Moltu ehf., sem framleiðir moltuna. Þar segir meðal annars: „moltan er úrvals jarðvegsbætir og áburður, hentug til dæmis í blóma- og trjábeð, á lóðina eða grasflötina. Hún er fínsigtuð, dökk, laus í sér og líkist mold en er mun efnaríkari.“

Moltan er eingöngu ætluð einstaklingum, ekki fyrirtækjum.

Moltan er komin á Seyðisfjörð
Getum við bætt efni þessarar síðu?