Flugslysaæfing verður haldin á Egilsstaðaflugvelli þann 14. október næstkomandi en leitað er að aðilum til að leika þolendur.
- Leikarar þurfa að vera 14 ára og eldri.
- Þátttakendur leika fólk sem lendir í flugslysi.
- Nýliðar og ungliðar í björgunarsveitum eru sérstaklega hvattir til að taka þátt.
- Förðun hefst snemma á laugardagsmorgun og stendur æfingin til um klukkan 14:00.
- Vel verður hugsað um alla leikara, þeir fá að borða og fá smá glaðning fyrir þátttökuna.
- Öryggi verður í hávegum haft.
Kynningarfundur verður í Egilsstaðaskóla klukkan 20:00 - 21:00 föstudaginn 13. október. Mikilvægt er að mæta á kynningarfundinn.
Frekari upplýsingar veitir umsjónaraðili leikara, Vigdís Björk í síma 894 9483 / vigdisbjork@gmail.com.
Skannaðu QR kóðann til að skrá þig: