Fara í efni

Könnun vegna fyrirhugaðrar ljósleiðaravæðingar í þéttbýli í Múlaþingi

19.07.2024 Fréttir

Múlaþing hefur til skoðunar að taka tilboði Fjarskiptasjóðs um að ljósleiðaravæða þau heimili í þéttbýli Múlaþings sem eru ekki nú þegar komin með ljósleiðaratengingu.

Áður en framkvæmdir hefjast á grundvelli styrks frá sjóðnum þá þarf sveitarfélagið að kanna eftirfarandi:

  1. Hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum. Lista yfir styrkhæf heimilisföng er hægt að nálgast hjá Múlaþingi,
  2. Hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleiðir sem sveitarfélagið kostar.

HEF veitur ehf. munu annast allt utanumhald varðandi verkefnið og geta þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga, haft samband fyrir 31. júlí næst komandi í netfangið hef@hef.is

Könnun vegna fyrirhugaðrar ljósleiðaravæðingar í þéttbýli í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?