Athygli er vakin á að ný gjaldskrá sorpmála hefur verið samþykkt í sveitarstjórn sem mun taka gildi um áramótin. Klippikortin munu því hækka í verði. Hvetjum við alla þá sem hafa hug á að kaupa sér ný klippikort að nýta sér að kaupa þau á gamla verðinu fram að áramótum.
Hægt er að kaupa klippikort á öllum afgreiðslustöðvum sem og móttökustöðvum Múlaþings.
- Stórt kort kostar 25.000 kr. en 38.500 kr. eftir áramót.
- Lítið kort kostar 8.000 kr. en 9.600 kr. eftir áramót.
Eldri kort gilda áfram.