Fara í efni

Íbúar fá bók að gjöf

12.06.2024 Fréttir

Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum þann 17.júní 1944 og fagnar því 80 ára afmæli á árinu. Af því tilefni gefur forsætisráðuneytið í samvinnu við Forlagið út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, sem verður gjöf til landsmanna og dreift um allt land fyrir 17.júní.

Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu hennar og tilurð sem þjóðartákns og ávörpin sem flutt hafa verið af íslenskri fjallkonu í formlegri hátíðardagskrá á Austurvelli allt frá árinu 1947. Ásamt þessum greinum eru í bókinni birt úrval þjóðhátíðarljóða og þýðingar á ensku og pólsku á formála forsætisráðherra og samantektum greinagerða um fjallkonuna. Þá er bókin fallega myndskreytt með teikningum og ljósmyndum.

Í samvinnu við Forlagið og sveitarfélögin er bókinni nú dreift um allt land, aðallega á bókasöfn og sundstaði, þar sem landsmenn geta nálgast bókina.

Í Múlaþingi má nálgast eintök á eftirfarandi stöðum á opnunartíma þeirra:

  • Bókasafn Héraðsbúa
  • Bókasafn Seyðisfjarðar
  • Bókasafn Djúpavogs
  • Hreppsstofan Borgarfirði Eystri
Íbúar fá bók að gjöf
Getum við bætt efni þessarar síðu?