Heimastjórn Djúpavogs boðar til opins íbúafundar á Hótel Framtíð mánudaginn 21. febrúar kl. 18:00. Boðið verður upp á súpu og brauð og skemmtilegar umræður. Dagskrá fundarins er eftirfarandi :
- Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, opnar fund.
- Framkvæmdaáætlun sumarsins.
- Staða skipulagsmála.
- Framkvæmdir á vegum HEF á þessu ári og plan næstu ára.
- Vinna Heimastjórnar það sem af er og til framtíðar.
- Önnur mál.