Heimastjórn Seyðisfjarðar boðar til opins íbúafundar miðvikudaginn 6. mars næstkomandi frá klukkan 16:00 - 18:00 í Herðubreið.
Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu ýmissa verkefna á Seyðisfirði og framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í sumar.
Dagskrá:
Eftirfarandi aðilar verða með stutt innlegg:
- Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings
- Aðalheiður Borgþórsdóttir, atvinnu- og menningarmálastjóri
- Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvæmda- og umhverfismálastjóri
- Sérfræðingur frá Veðurstofunni
Jónína Brynjólfsdóttir, formaður Heimastjórnar Seyðisfjarðar stýrir fundi.
Hvetjum sem flesta íbúa til að mæta og kynna sér framkvæmdir í sveitarfélaginu. Kaffi og kruðerí á boðstólnum.