Í kvöld, miðvikudaginn 23. febrúar, klukkan 19.00 stendur heimastjórn Djúpavogs fyrir opnum íbúafundi á Hótel Framtíð. Fundinum verður einnig streymt beint á Facebook síðu Múlaþings og þar verður einnig hægt að senda inn fyrirspurnir, beint í gegnum viðburðinn, til frummælenda. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir fyrir fundinn eða meðan á honum stendur í gegnum vefsíðuna www.slido.com. Þegar inn á þá síðu er komið er í reitinn „Enter code here“ slegin talan 765.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi :
- Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, opnar fund.
- Framkvæmdaáætlun sumarsins.
- Staða skipulagsmála.
- Framkvæmdir á vegum HEF veitna á þessu ári og plan næstu ára.
- Vinna Heimastjórnar það sem af er og til framtíðar.
- Önnur mál.