Yfir vetrartímann, þegar er dimmt, gjarnan mikill snjór og hálka, er bráðnauðsynlegt að við hjálpumst öll að í umferðinni. Skyggni er gjarnan slæmt, háir skaflar og veggir hafa myndast víða og aðstæður verða þannig að ekki er alltaf hægt að stöðva ökutæki á augabragði eða bregðast hratt við. Eins eru gangstéttar ekki alltaf ruddar um leið og göturnar, sem kallar á aukinn fjölda gangandi vegfaranda á götunum.
Því er gott fyrir okkur að huga að einu og öðru þegar við ferðumst um götur sveitarfélagsins, ekki síst innanbæjar.
Ef við erum akandi:
- Ökum varlega og höfum varann á.
- Virðum allar hraðatakmarkanir, það er alltaf mikilvægt en sérstaklega þegar aðstæður eru ekki góðar.
- Höfum augun opin fyrir gangandi vegfarendum og börnum að leik.
- Leggjum bílum í þar til gerð stæði, ekki á gangstéttar og göngustíga.
Ef við erum gangandi eða hjólandi:
- Notum endurskinsmerki til að vera vel sýnileg.
- Virðum umferðarreglur.
Foreldrar og forráðafólk minni sín börn á að fylgja umferðarreglum, hafa varann á þegar gengið og hjólað er og vera vel endurskinsmerkt.
Hjálpumst að í umferðinni!