Búið er að koma upp grenndarstöðvum fyrir gler og málma á Egilsstöðum, Seyðisfirði og Djúpavogi.
Stöðvarnar eru staðsettar á eftirfarandi stöðum:
- Egilsstaðir – að Tjarnarási 9 milli þjónustumiðstöðvar og móttökustöðvar, framan við hús Rauða krossins.
- Seyðisfjörður - framan við móttökustöð við Fjarðargötu.
- Djúpivogur – á planinu bak við Tryggvabúð, Markarland 2.
Á öllum stöðum eru jafnframt gámar frá Rauða krossinum fyrir textíl.