Nýlega voru samþykktar af sveitarstjórn Múlaþings reglur um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja. Samkvæmt þeim geta eldri borgarar og öryrkjar átt rétt á allt að þremur gjaldfrjálsum garðsláttum yfir sumarið ef þeir uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Umsækjandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu Múlaþingi.
- Umsækjandi hafi eingöngu tekjur vegna grunnlífeyris, s.s. örorkulífeyri eða ellilífeyri frá Tryggingastofnun.
- Þjónustan er að jafnaði ekki veitt ef aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, geta sinnt henni.
- Starfsmaður félagsþjónustu meti aðstæður umsækjanda þannig að hann geti ekki sinnt garðslætti sjálfur. Hægt er að óska eftir læknisvottorði því til staðfestingar.
Hægt er að sækja um garðslátt á heimasíðu Múlaþings, með rafrænum skilríkjum í gegnum umsóknir. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofum sveitarfélagsins í síma 4 700 700.