Þann 8. apríl ætlar Austurbrú að stefna saman fólki í fundarsal Berjaya Hotels á Egilsstöðum til að ræða framtíðarsýn fyrir skíðasvæðin tvö á Austurlandi í Stafdal og í Oddsskarði. Fulltrúar frá ferðaþjónustunni, sveitarfélögunum og fyrirtækjum verða með örerindi og í framhaldinu munu þátttakendur vinna og spjalla saman um þetta hagsmunamál okkar allra.
Hægt er að sjá frekari upplýsingar um fundinn hér.