Fjölskylduráð Múlaþings samþykkti á fundi sínum 30.11.21 Reglur um daggæsluframlag til foreldra sem ekki hafa fengið vistun fyrir börn sín frá 1 árs aldri hjá dagforeldri eða í leikskóla.
Sækja má um framlag frá og með 1. nóvember s.l. en umsókn þarf að hafa borist fyrir 20. dag hvers mánaðar. Hér er hlekkur á Reglur sveitarfélagsins Múlaþings um daggæsluframlag og hér er linkur á umsókn.