Fara í efni

Breytingar á sorphirðumálum

14.08.2023 Fréttir

Fyrirhugaðar eru breytingar á sorphirðumálum í Múlaþingi í takt við það sem auglýst var í desember 2022. Íbúar mega eiga von á bækling inn um lúguna hjá sér á næstu dögum þar sem farið er yfir þær breytingar. Haldnir verða íbúafundir þar sem farið verður enn ítarlegar í breytingarnar og hægt að spyrja spurninga sem kunna að liggja íbúum á hjarta.

Tímasetningar og staðsetningar íbúafunda verða sem hér segir:

Íbúafundir:

21.08 Seyðisfjörður – Herðubreið klukkan 17:00

21.08 Egilsstaðir – Valaskjálf klukkan 20:00

22.08 Djúpivogur – Langabúð klukkan 20:30.

Breytingar á sorphirðumálum
Getum við bætt efni þessarar síðu?