Fara í efni

Aukið umferðaröryggi - ábendingar frá íbúum

21.06.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Múlaþing vinnur nú að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið en markmið hennar er að búa til aðgerðaráætlun svo auka megi öryggi, fækka slysum og auka lífsgæði íbúa sem og annarra sem ferðast um sveitarfélagið.

Múlaþing hefur efnt til stafræns íbúasamráðs þar sem íbúum gefst tækifæri á að senda inn ábendingar svo tryggja megi öryggi gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda í sveitarfélaginu.
Íbúar eru hvattir til að senda inn ábendingar varðandi hættulega staði í umferðinni ásamt kortlagningu á staðsetningu þeirra en opið er fyrir ábendingar til 24. júní næstkomandi.

Mikilvægur grundvöllur vinnunnar er að kortleggja hætturnar í umferðinni. Kortlagningin mun ekki bara byggja á hvar slysin hafa átt sér stað heldur einnig taka mið af upplifun vegfarenda á varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.

Smelltu hér til að senda inn ábendingar.

Aukið umferðaröryggi - ábendingar frá íbúum
Getum við bætt efni þessarar síðu?