Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2021 er haldinn hátíðlegur í dag, 9. febrúar 2021.
Að venju er það SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla um jákvæða og örugga netnotkun, sem hefur veg og vanda af dagskrá netöryggisdagsins og í ár er hún virkilega flott. Í tilefni dagsins verður boðið upp á stutt erindi um ýmis málefni sem viðkoma netnotkun barna og ungmenna.
Má þar til dæmis nefna erindi um netnotkun leikskólabarna og persónuvernd í skólastarfi og verða þau öll á netinu, bæði á Youtube síðu SAFT og einnig birt á Facebooksíðu SAFT.
Í tilefni dagsins er hægt að mæla með því að foreldrar og börn kíki á vefsíðu SAFT, þar sem hægt er að finna ýmsan fróðleik varðandi örugga netnotkun. Meðal annars má þar finna glænýjan bækling sem nefnist Ung börn og snjalltæki, en honum verður einnig dreift í alla leikskóla landsins nú í febrúar.
Þá má benda á að Barnaheill – Save the Children á Íslandi, í samstarfi við ríkislögreglustjóra, starfrækir ábendingalínu fyrir ólöglegt og óviðeigandi efni á neti. Ábendingahnappinn má finna á heimasíðum lögreglunnar, SAFT og Barnaheilla.
SAFT – samfélagið, fjölskylda og tækni: https://saft.is/