Björn Ingimarsson er sveitarstjóri Múlaþings og gegnir einnig starfi hafnarstjóra Hafna Múlaþings.
Björn er með meistaragráðu í Þjóðhagfræði frá Gautaborgarháskóla. Hann hefur margra ára reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi í atvinnurekstri bæði hér á landi og erlendis en undanfarin ár hefur hann einkum starfað á vettvangi sveitarstjórnarmála.
Björn starfaði sem sveitarstjóri Þórshafnarhrepps árin 2001 – 2006, sem sveitarstjóri Langanesbyggðar árin 2006 – 2009, sem bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs frá því í júlí 2010 þar til í september 2020 og sem sveitarstjóri Múlaþings frá því í október 2020.
Björn er giftur Sigrúnu Jónu Óskarsdóttur, förðunarfræðingi, og eiga þau sex börn.
Sveitarstjóri situr í eftirtöldum nefndum / stjórnum fyrir hönd sveitarfélagsins:
- Stjórn Eignarhaldsfélags Brunabótarfélags Íslands
- Stjórn Sveitarfélaga á köldum svæðum
- Stjórn Vísindagarðsins ehf
- Stjórn Ársala bs
- Stjórn Brunavarna á Héraði bs
- Almannavarnarnefnd Austurlands
Ráðningarsamningur sveitarstjóra