Opnunartími Bókasafns Héraðsbúa í desember er eftirfarandi:
Alla virka daga frá klukkan 13:00 til 18:00 að föstudögunum 22. og 29. desember undanskildum en þá daga er safnið lokað.
Á milli hátíða er opið miðvikudaginn 27. desember og fimmtudaginn 28. desember frá klukkan 13:00 til 18:00.
Bókasafnið opnar aftur á nýju ári þann 2. janúar klukkan 13:00.
Gleðileg bókajól.
Starfsfólk Bókasafnsins.