Múlaþing óskar eftir tilboðum í útkeyrslu matarbakka, samkvæmt 40. grein laga númer 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, frá og með 1. mars 2026 og til 29. febrúar 2028.
Um er að ræða útkeyrslu matarbakka alla daga ársins kl. 11.30 frá eldhúsi HSA á Egilsstöðum til 23-28 heimila að meðaltali í hvert skipti á Egilsstöðum og í Fellabæ sem og virka daga í dagdvölina í Hlymsdölum.
Gert er ráð fyrir að útkeyrslu sé að öllu jöfnu lokið klukkan 13:00 sama dag.
Í tilboðinu skal koma fram daggjald verktaka og inni í því fælist allur kostnaður við aksturinn, svo sem kostnaður við ekna kílómetra, olíu/bensín og laun bílstjóra. Tilboð skulu berast á netfangið mulathing@mulathing.is fyrir klukkan 12:00 þann 21. janúar 2025. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til þess að hafna öllum tilboðum.
Anna Alexandersdóttir, sviðstjóri velferðar Múlaþings.