Sveitarfélagið Múlaþing óskar eftir tilboðum í verkið:
Votihvammur II - Gatnagerð og veitulagnir.
Verkið felst í jarðvegsskiptum í götum og gangstígum ásamt jöfnun lóða að hönnuðum hæðum. Leggja skal fráveitu-, regnvatns-, hitaveitu-, vatnsveitu-, gagnaveitu- og raflagnir og tengja allar lagnir við núverandi bæjarkerfi, ásamt uppsetningu ljóstastaura.
Uppúrtekt úr lóðum 5750 m3
Uppúrtekt úr götum 7300 m3
Burðarlag í götur 7300 m3
Skurðgröftur 1400 m
Söndun í lagnaskurð 1400 m
Hitaveitulagnir 540 m
Vatnslagnir 540 m
Fráveitulagnir 1310 m
Gagnaveitulagnir 2400 m
Ljósastaurar 17 stk
Útboðsgögn verða afhent rafrænt. Óskir um afhendingu útboðsgagna berist til Guðmundar Magna Bjarnasonar, gmb@efla.is. Tilboðum skal skilað eigi síðar en föstudaginn 9. september fyrir kl. 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.