Fara í efni

Sumarstörf hjá Múlaþingi

02.02.2023 Fréttir

Laus eru til umsóknar fjöldamörg spennandi sumarstörf hjá Múlaþingi. Störfin eru af ýmsu tagi og henta til dæmis skólafólki og öðrum sem hafa áhuga á því að spreyta sig á nýjum vettvangi.

Dæmi um störf eru verkstjórar í Vinnuskóla, forstöðuaðilar og starfsfólk í Sumarfrístund, flokkstjórar Vinnuskóla, starfsfólk á íþróttavöllum og fleira. Eru þessi störf ýmist nú þegar opin fyrir umsóknir eða opna á allra næstu dögum. Sótt er um á Alfreð.is og hvetjum við áhugasöm til að fylgjast með og sækja um.

Sumarstörf hjá Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?